Sylvía Sól, sem hefur gert það gott á íslenska TikTok með sérlega kósý myndböndum, fagnaði 27 ára afmæli sínu í gær. Samdægurs tilkynnti hún með Ólafi, kærasta sínum, að þau ættu von á barni á Instagram.
„Langbesti kaflinn hingað til að byrja, mamma og pabbi,“ sagði í færslunni en parið hefur verið saman í þrjú ár.
Þetta er þó ekki fyrsta barnabarn Péturs því hann varð fyrst afi um páskana árið 2023 þegar sonur hans og Sigrúnar Halldórsdóttur eignaðist dóttur.