Samfélagsmiðlastjarnan Patrekur Jaime var með áhugaverðar pælingar um Bakgarðshlaupið sem fram fór um helgina. Í myndbandi sem hann birti á Instagram segist hann eiga erfitt með að skilja hvað fái fólk til að hlaupa hundruð kílómetra samfleytt í marga klukkutíma og jafnvel daga.
Bakgarðshlaupið er hlaup þar sem keppendur hlaupa hring eftir hring þar til aðeins einn stendur eftir. Keppnin hefur notið mikilla vinsælda undanfarin ár og margir líta á hana sem eina erfiðustu keppni sem hægt er að taka þátt í, en þar reynir ekki síður á andlega styrkinn en þann líkamlega.
Patrekur segist hins vegar ekki skilja aðdráttaraflið.
„Mig langar aðeins að fræða mig um hvað gerðist við hann í æsku, til þess að honum liði það illa að hann þarf að hlaupa tvö hundruð kílómetra á tveim dögum,“ segir hann.
Hann segist jafnframt vilja heyra frá íþróttafræðingi eða næringarfræðingi hvort slíkt álag sé í raun gott fyrir líkamann eða andlega heilsu fólks.
„Ég bara trúi því ekki að vera á vökunni að hlaupa í tvo daga sé actually gott fyrir líkama eða sál,“ segir hann.
Patrekur gekk svo enn lengra og sagði að persónulega teldi hann jafnvel skárra að vera „í Kóngsbakkanum í Breiðholtinu að reykja krakk í tvo daga.“
„En það er bara ég. Er mér einum sem finnst þetta smá galið?“ bætir hann við áður en hann tekur fram að hann beri þó virðingu fyrir fólkinu sem taki þátt.
„Duglegt fólk sem gerir þetta en something ain’t right, skilurðu?“ segir Patrekur.