Ó­við­unandi að á­kveðnir hópar barna búi enn við svo mikið úr­ræða­leysi - Vísir

Ó­við­unandi að á­kveðnir hópar barna búi enn við svo mikið úr­ræða­leysi - Vísir

Ó­við­unandi að á­kveðnir hópar barna búi enn við svo mikið úr­ræða­leysi - Vísir

Ríkisendurskoðun segir enn vanta stafrænt kerfi til að deila gögnum og hvetur stjórnvöld til að endurskoða fyrirkomulag vímuefnameðferðar fyrir börn. Samræma þurfi hana við það sem er í boði fyrir fullorðna.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunar um innleiðingu og framkvæmd laganna. Þar kemur fram að Ríkisendurskoðun telji ófullnægjandi undirbúning í aðdraganda setningar laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna hafa haft neikvæð áhrif á innleiðingu og framkvæmd þeirra. Ríkisendurskoðun telur auk þess að ávinningsmat sem var unnið í aðdraganda lagasetningar hafi sett óraunhæfar væntingar um aukna farsæld og telur að greina hafi þurft betur hvað þyrfti til að auka farsæld barna áður en lagt var af stað í breytinguna.

Gátu ekki sinnt sínu hlutverki

Í skýrslunni kemur einnig fram að óheppilegt hafi verið að setja Barna- og fjölskyldustofu og Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála á stofn samtímis við lagabreytinguna og stofnanirnar hafi því ekki getað sinnt hlutverki sínu almennilega.

Næstu áramót eru fimm ár frá gildistöku laganna og þar með átti innleiðingu að vera lokið samkvæmt lögunum. Í skýrslu Ríkisendurskoðunar segir að það muni ekki takast og ekki liggi fyrir hversu langan tíma þurfi til viðbótar. Gerðar eru alvarlegar athugasemdir við það að enn séu hópar barna sem njóta ekki samþættrar þjónustu í sama mæli og börn með vægari vanda. Þar megi helst nefna börn með fjölþættan vanda, börn sem glíma við vímuefnavanda, fósturbörn og börn með fötlun.

„Að mati Ríkisendurskoðunar er þessi staða óviðunandi í ljósi þess að hér er um að ræða börn sem þurfa hvað mest á samþættri þjónustu að halda,“ segir í skýrslunni.

Sex ábendingar

Sex ábendingar eru lagðar fram í skýrslu Ríkisendurskoðunar. Fjórum þeirra er beint til mennta- og barnamálaráðuneytisins, einni líka til heilbrigðisráðuneytis og Barna- og fjölskyldustofu og svo síðustu til mennta- og barnamálaráðuneytis, heilbrigðisráðuneytis og forsætisráðuneytis.

Fyrsta tillagan snýr að því að bæta þurfi yfirsýn yfir stöðu barna og kortleggja hvað þurfi til að auka farsæld barna, þá þurfi að skilgreina hlutlæga árangursmælakvarða sem eigi að fylgja eftir reglulega og setja á stafrænt kerfi um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna. Þá telur Ríkisendurskoðun að skýra þurfi aðkomu veitenda almennrar þjónustu og að efla þurfi þjónustuinnviði og síðast en ekki síst að endurskoða þurfi fyrirkomulag og skipulag vímuefnameðferðar barna og ungmenna.

Í skýrslunni er að finna ítarlega skýringu á hverri tillögu og svör frá ráðuneytunum og stofnunum hvað varðar ábendingar Ríkisendurskoðunar.

Óviðunandi hætta á brotum á persónuvernd

Þar kemur til dæmis fram að Ríkisendurskoðun telji að samráði við heilbrigðisráðuneytið í aðdraganda gildistöku laganna hafi verið ábótavant. Að mati ráðuneytisins hafi skortur á samræmdu verklagi og ófullnægjandi útfærsla á fyrirkomulagi við vinnslu og miðlun gagna valdið því að örugg miðlun upplýsinga milli kerfa, í samræmi við lög, sé ekki tryggð og að stafrænu kerfi hafi ekki verið komið á til að halda utan um samþætta þjónustu.

Ríkisendurskoðun telur að núverandi fyrirkomulag, þar sem margir aðilar notast við ólík kerfi til að halda utan um og miðla upplýsingum, feli í sér óviðunandi áhættu á því að framkvæmdin fari í bága við lög um persónuvernd.

Þá er bent á að að mati Ríkisendurskoðunar hefði í aðdraganda lagasetningarinnar þurft að kortleggja stöðu barna, hvaða úrræði og þjónusta væru til staðar og hvaða úrræði vanti. Á grundvelli slíkrar greiningar hefði forgangsröðun aðgerða átt að byggja. Ávinningsmat hafi byggt á þeirri forsendu að með breytingu á lögunum mætti fækka áföllum barna og auka seiglu með því að bregðast fyrr við. 

Samvinna ekki til að bæta þjónustu eða úrræði

Ávinningsmatið byggi á þeirri forsendu að með farsældarlögunum megi fækka áföllum barna og auka seiglu þeirra með því að bregðast við um leið og þörf fyrir þjónustu kemur upp. Ekkert í lögunum fjalli þó um að auka þjónustu, stytta bið eða fjölga og bæta úrræði sem þurfa að vera til staðar.

„Farsældarlögin eru samvinnulög, ekki þjónustu- eða úrræðalög,“ segir í skýrslu Ríkisendurskoðunar og gagnrýnt hvernig unnið var að málinu í aðdraganda. Kostnaðarmat hafi verið óraunsætt og kostnaður við þjónustu við hvert barn sé hærri en áætlað hafi verið. Þá sýni tölur að um fjórfalt færri börn þiggi samþætta þjónustu en gert hafi verið ráð fyrir.

Ekkert árangursmat verið framkvæmt

Menntamálaráðuneytið telur ástæðuna vera frekar að skráningum sé ábótavant en Ríkisendurskoðun telur þau svör gefa ástæðu til að skráning upplýsinga vegna samþættingar þjónustu verði tekin til gagngerrar skoðunar.

Þá gagnrýnir Ríkisendurskoðun einnig að ráðuneytinu hafi borið, samhliða innleiðingu, að setja árangursmælikvarða og framkvæma reglulegt árangursmat með endurmati á fjármagnsþörf en hvorugt hafi verið gert og því verði ekki hægt að leggja mat á það hvort að lögin hafi skilað tilætluðum árangri við lok formlegs innleiðingarferils um áramótin. Það geri það erfitt að meta fjárþörf til framtíðar.

Ríkisendurskoðun bendir svo á að svo að hægt sé að samþætta þjónustu verði að vera hægt að veita þjónustu og þó svo að búið sé að skipa málstjóra og tryggja betra samtal á milli kerfa tryggi það ekki eitt og sér snemmtækan stuðning. 

Í skýrslunni kemur jafnframt fram að í samtölum Ríkisendurskoðunar við starfsfólk hafi komið fram ánægja með breytingarnar en fáir hafi viljað fullyrða að farsældarlögin hefðu skilað beinum árangri og bentu á að veikir innviðir stæðu helst í vegi fyrir betri árangri.

 „Nær allir þeir sem Ríkisendurskoðun ræddi við vegna úttektarinnar töluðu um að úrræðaskortur og bið eftir þjónustu settu enn mark sitt á þjónustu við börn og ungmenni,“ segir í skýrslunni.

Ná ekki að uppfylla markmið laganna

Ríkisendurskoðun telur því að miðað við núverandi stöðu í margvíslegri þjónustu við börn séu ekki forsendur til staðar til að ná fram meginmarkmiði laganna um að börn og foreldrar sem á þurfi að halda hafi aðgang að samþættri þjónustu við hæfi án hindrana.

Ríkisendurskoðun bendir svo sérstaklega á veitingu meðferðar vegna vímuefnavanda barna og ungmenna. Það sé í dag á ábyrgð menntamálaráðuneytisins en vímuefnavandi fullorðinna á borði heilbrigðisráðuneytis.

Verði að skoða framtíðarskipulag þjónustu við börn með vímuefnavanda

Ríkisendurskoðun telur ástæðu til að stjórnvöld skoði vel hvernig framtíðarskipulagi þjónustu við börn með vímuefnavanda er best fyrir komið. Embættið telur brýnt að við þessa endurskoðun verði horft til þess að jafna rétt þessa hóps við fullorðna með vímuefnavanda, samanber lög um réttindi sjúklinga, tryggja aðkomu heilbrigðisstarfsmanna að meðferðinni og tryggja samhæfingu og samvinnu félags- og heilbrigðiskerfis.

Í skýrslunni er einnig fjallað sérstaklega um ákveðna hópa barna og skert aðgengi þeirra að samþættri þjónustu. Þegar vandinn sé alvarlegur og börnin þurfi þjónustu margra aðila nái þjónustan ekki til þeirra. 

Við skoðun Ríkisendurskoðunar hafi komið í ljós að börn með fjölþættan vanda, vímuefnavanda og fósturbörn virtust síður fá þjónustu í samræmi við lögin en aðrir hópar. Algengt væri þó að þessum hópum tilheyrðu börn sem þurfa þjónustu frá mörgum stofnunum þvert á kerfi og í mörgum tilfellum þurfa þau víðtækan stuðning. Þá hafi einnig komið í ljós að ákveðin hindrun væri til staðar fyrir börn af erlendum uppruna og börn með fatlanir varðandi samþættingu á þjónustu.

„Báðir hópar geta þurft á sérhæfðari stuðningi að halda, en að sögn Barna- og fjölskyldustofu var sérstaklega rýnt í stöðu þeirra við undirbúning laganna,“ segir í skýrslunni og er svo sérstaklega fjallað um hvern hóp fyrir sig. Skýrsluna er hægt að kynna sér nánar hér. 

#barna #búi #hópar #ákveðnir #óviðunandi


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262895207d/ovidunandi-ad-akvednir-hopar-barna-bui-enn-vid-svo-mikid-urraedaleysi

📰 Aðrar fréttir

Malbiksviðgerðir á Arnarnesvegi
📅 25.10.2026 👁️ 1
Malbiksviðgerðir á Arnarnesvegi
Stefnt er að malbiksviðgerðum á Arnarnesvegi mánudaginn 26. október, milli klukkan 10:00 og 16:00. Búast má við einhverjum töfum á umferð á meðan á fr...
Funding set to double for plan to get rough sleepers off streets by Christmas
📅 25.10.2026 👁️ 1
Funding set to double for plan to get rough sleepers off streets by Christmas
Burnham made ending rough sleeping his first pledge when entering Downing Street in July.
„Noregur sökkar“ - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 1
„Noregur sökkar“ - Vísir
Trump er tíðrætt um einmitt það og ljóst að norska þjóðin hefur ekki verið í miklu uppáhaldi hjá Bandaríkjaforseta frá því að tilkynnt var um að Nóbel...
Deeply divided Israel braces for pivotal election
📅 25.10.2026 👁️ 1
Deeply divided Israel braces for pivotal election
After three years of regional war, this is a battle Israel always knew was coming, writes Lucy Williamson.
Trump eftir Nóbelsverðlaunin: „Noregur er í raun orðinn skítaland“
📅 25.10.2026 👁️ 1
Trump eftir Nóbelsverðlaunin: „Noregur er í raun orðinn skítaland“
Donald Trump Bandaríkjaforseti kallaði Noreg skítaland á kosningafundi í McMorran Place í Port Huron í Michigan nú í dag, sunnudaginn 25. október. Han...
Vučić játar ó­sigur - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 1
Vučić játar ó­sigur - Vísir
Serbneski framfaraflokkurinn undir forystu Vučić hefur farið með stjórn landsins í hálfan annan áratug og Vučić sjálfur flakkað á milli embættis forsæ...
Suðurlandsvegi lokað við Rauðavatn annað kvöld
📅 25.10.2026 👁️ 1
Suðurlandsvegi lokað við Rauðavatn annað kvöld
Kafla af Suðurlandsvegi verður lokað á annað kvöld, frá klukkan átta til miðnættis. Þetta kemur fram á síðu Vegagerðarinnar.Stefnt er að malbiksviðger...
Manchester United & Michael Carrick: Air of inevitability around manager's future but owners' problems far bigger
📅 25.10.2026 👁️ 1
Manchester United & Michael Carrick: Air of inevitability around manager's future but owners' problems far bigger
Manchester United's fans sang their support for Michael Carrick during the 3-0 home defeat by Bournemouth, but voiced their opposition to virtually ev...
Segir Við­reisn í krísu og úti­lokar ekki að hætta stuðningi - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 1
Segir Við­reisn í krísu og úti­lokar ekki að hætta stuðningi - Vísir
Jón sagði sig úr þingflokki Viðreisnar fyrr í mánuðinum en er áfram meðlimur í flokknum. Hann gerði skriflegt samkomulag við þingflokkinn um að styðja...
Serbia's Vučić concedes election defeat to student-led protest movement
📅 25.10.2026 👁️ 3
Serbia's Vučić concedes election defeat to student-led protest movement
The country's populist right-wing leader of 12 years says it is "clear" hisb Serbian Progressive Party (SNS) has lost.
Serbia's veteran ruler Vučić concedes election to student-led protest movement
📅 25.10.2026 👁️ 1
Serbia's veteran ruler Vučić concedes election to student-led protest movement
The populist right-wing leader of 12 years says it is "clear" his party has lost the vote billed as a referendum on the country's future.
Vučić viðurkennir ósigur í Serbíu
📅 25.10.2026 👁️ 3
Vučić viðurkennir ósigur í Serbíu
Aleksandar Vučić, fyrrverandi forseti Serbíu, viðurkennir ósigur í þingkosningunum sem fóru fram í landinu í dag. Hann segir fjöldahreyfingu stúdenta ...
Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 3
Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić - Vísir
Kjörstöðum var lokað klukkan átta að staðartíma í kvöld. Klukkustund fyrr höfðu 67,6 prósent kjósenda þegar greitt atkvæði samkvæmt umfjöllun Reuters....
Gljúfrabúi veitir Seljalandsfossi samkeppni
📅 25.10.2026 👁️ 3
Gljúfrabúi veitir Seljalandsfossi samkeppni
Fossinn Gljúfrabúi nýtur vaxandi vinsælda meðal erlendra ferðamanna, en áður var fossinn vel falin perla sem fáir utan landsteinanna vissu af.Göngum u...
Ekki síðasti alvarlegi netöryggisgallinn sem getur valdið meiriháttar tjóni
📅 25.10.2026 👁️ 3
Ekki síðasti alvarlegi netöryggisgallinn sem getur valdið meiriháttar tjóni
Fleiri alvarlegir öryggisgallar, eins og sá sem varað var við í PHP-forritunarmálinu í vikunni, eiga eftir að koma í ljós. Þetta segir Ingólfur Andri ...
Frambjóðendur í Brasilíu vilja halda kjörstöðum opnum lengur
📅 25.10.2026 👁️ 3
Frambjóðendur í Brasilíu vilja halda kjörstöðum opnum lengur
Kjörstöðum í Brasilíu hefur verið lokað. Önnur umferð forsetakosninga fór fram í landinu í dag.Samkvæmt nýjustu skoðanakönnunum eru frambjóðendurnir, ...
Kjörstaðir opnir lengur í Brasilíu
📅 25.10.2026 👁️ 3
Kjörstaðir opnir lengur í Brasilíu
Kjörstöðum í Brasilíu verður haldið opnum tveimur klukkustundum lengur en til stóð. Þeir áttu að loka klukkan fimm að staðartíma en verða opnir til kl...
50+: Að hætta að vera þjónustu­mið­stöð full­orðinna barna - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 3
50+: Að hætta að vera þjónustu­mið­stöð full­orðinna barna - Vísir
En þetta tveggja áratuga starf sem hefur falið í sér að vera framkvæmdastjóri, skutlari, fjármálastjóri, tilfinningalegur öryggispúði og svo mætti len...
Garðfuglakönnun yfir vetrarmánuðina hafin
📅 25.10.2026 👁️ 3
Garðfuglakönnun yfir vetrarmánuðina hafin
Árleg garðfuglakönnun félagsins Fuglaverndar hófst í dag og stendur til 24. apríl. Kannanir hófust 1994 og tilgangur þeirra er að afla upplýsinga um f...
Leikur á hnífs­egg í Brasilíu - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 3
Leikur á hnífs­egg í Brasilíu - Vísir
Kosningarnar eru hnífjafnar samkvæmt síðustu skoðanakönnunum og fara fram í skugga mikillar pólitískrar skautunar sem birtist einna skýrast í því að f...
Fagur söngur fljótandi dívu dró marga að Reykjavíkurtjörn
📅 25.10.2026 👁️ 3
Fagur söngur fljótandi dívu dró marga að Reykjavíkurtjörn
Hátíðin var sett á kaffihúsi í miðbænum í dag. Því næst var gengið á milli staða og viðstaddir fengu að njóta óperu á hverjum stað. Óperudagar standa ...
Kjörstöðum lokað í Serbíu
📅 25.10.2026 👁️ 3
Kjörstöðum lokað í Serbíu
Kjörstöðum í Serbíu hefur verið lokað og búast má við fyrstu tölum eftir um tvær klukkustundir. Þingkosningar voru í landinu í dag og allt bendir til ...
Er hægt að treysta aftur eftir fram­hjá­hald? - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 3
Er hægt að treysta aftur eftir fram­hjá­hald? - Vísir
Sæl og takk fyrir góða og mikilvæga spurningu. Það þarf ekki endilega að rjúfa öll tengsl við manneskjuna sem framhjáhaldið átti sér stað með til þess...
Eðlilegt að fólki misbjóði dómur Landsréttar
📅 25.10.2026 👁️ 3
Eðlilegt að fólki misbjóði dómur Landsréttar
Meira en átta þúsund undirskriftir hafa safnast á undirskriftalista þar sem þess er krafist að gerð verði óháð úttekt á meðferð kynferðis- og kynbundi...
Letter making claims about Meghan's father written by his ex-wife, BBC understands
📅 25.10.2026 👁️ 3
Letter making claims about Meghan's father written by his ex-wife, BBC understands
Roslyn Loveless, who has since died, divorced Meghan's father in 1975. Meghan said she had been informed about the "disturbing allegations" in 2018.
Long queues after power surge at Stansted Airport
📅 25.10.2026 👁️ 3
Long queues after power surge at Stansted Airport
A passenger says she was trapped in a corridor at the airport for 90 minutes.
Stjórnar­skráin trompi alltaf bókun 35 - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 3
Stjórnar­skráin trompi alltaf bókun 35 - Vísir
„[Bókun 35] verður aldrei beitt þannig að hún víki til hliðar stjórnarskránni. Stjórnarskráin mun alltaf trompa hana,“ sagði Hafsteinn í Sprengisandi ...
Mikill léttir að innviðaráðherra ætli að bæta fjármagni í Loftbrú
📅 25.10.2026 👁️ 3
Mikill léttir að innviðaráðherra ætli að bæta fjármagni í Loftbrú
Þingmaður Samfylkingar í Norðausturkjördæmi segir mikinn létti að innviðaráðherra ætli að bæta við fjármagni í Loftbrú. Sú upphæð sem hann hafi kynnt ...
Kartöflugeymslu breytt í lista- og menningarmiðstöð á Selfossi
📅 25.10.2026 👁️ 3
Kartöflugeymslu breytt í lista- og menningarmiðstöð á Selfossi
Kartöflugeymslan var tekin í notkun 1952 og var notuð í tugi ára. Þar gátu íbúar geymt kartöflur sínar yfir veturinn. Húsið, sem kallast í dag Langhús...
Board of Deputies of British Jews declares Greens to be racist party
📅 25.10.2026 👁️ 4
Board of Deputies of British Jews declares Greens to be racist party
The Jewish body's vote comes in response to the Green Party passing a "Zionism is racism" policy motion.
Fyrrverandi kennari í Síðuskóla sakar samstarfsfólk um einelti vegna skoðanaskrifa – segir nemendur hafa blandast í deiluna
📅 25.10.2026 👁️ 4
Fyrrverandi kennari í Síðuskóla sakar samstarfsfólk um einelti vegna skoðanaskrifa – segir nemendur hafa blandast í deiluna
Fyrrverandi kennari í Síðuskóla sakar samstarfsfólk um einelti vegna skoðanaskrifa – segir nemendur hafa blandast í deiluna Fréttin25. október 2026Inn...
Musk segir SpaceX hafa takmarkað Starlink í Úkraínu
📅 25.10.2026 👁️ 4
Musk segir SpaceX hafa takmarkað Starlink í Úkraínu
Musk segir SpaceX hafa takmarkað Starlink í Úkraínu Úkra­ínskur varn­ar­mála­ráð­herra segir teng­ing­una nú stöðuga. Elon Musk segir að her lands­ins...
Machado snýr heim eftir nær árs út­legð - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 4
Machado snýr heim eftir nær árs út­legð - Vísir
„Ég er hér. Með ykkur,“ skrifaði Machado á samfélagsmiðlum í dag. Bandamaður hennar, Edmundo González Urrutia, sem bauð sig fram gegn Nicolás Maduro í...
Voru mannfórnir hluti af útförum egypskra konunga?
📅 25.10.2026 👁️ 4
Voru mannfórnir hluti af útförum egypskra konunga?
Lengi hefur verið deilt um hvort Egyptar hafi stundað mannfórnir við útfarir fyrstu konunga sinna.Niðurstöður nýrrar rannsóknar benda til þess að þjón...
Pentagon afhjúpar leyniskjöl um Roswell
📅 25.10.2026 👁️ 1
Pentagon afhjúpar leyniskjöl um Roswell
Pentagon afhjúpar leyniskjöl um Roswell Dularfullt geimfarGeimfar sem sást í vesturhluta Bandaríkjanna á þessu ári Mynd: Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjan...
Linda Dröfn og Tótla sjóð­heitt par - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 4
Linda Dröfn og Tótla sjóð­heitt par - Vísir
Linda Dröfn, sem er 51 árs, hefur stýrt Kvennaathvarfinu í rúm fjögur ár en nýtt glæsilegt húsnæði athvarfsins var opnað fyrir nokkrum vikum. Í desemb...
Man killed by falling tree as Storm Boelo leaves 160,000 properties without power
📅 25.10.2026 👁️ 3
Man killed by falling tree as Storm Boelo leaves 160,000 properties without power
An amber wind warning will remain until Sunday evening as severe weather continues to batter the UK.
Two men killed by falling trees as Storm Boelo leaves 160,000 properties without power
📅 25.10.2026 👁️ 1
Two men killed by falling trees as Storm Boelo leaves 160,000 properties without power
An amber wind warning has now expired after severe weather sweeps across the UK.
Hefur ekki áhyggjur af áhrifum á löggæslu á landsbyggðinni
📅 25.10.2026 👁️ 3
Hefur ekki áhyggjur af áhrifum á löggæslu á landsbyggðinni
Grímur Grímsson, þingmaður Viðreisnar og fyrrverandi lögreglumaður, segir viðbúið að skiptar skoðanir séu á fyrirætlunum. Gagnrýnisraddirnar séu þó ek...
Manchester United - Michael Carrick future as manager under major threat
📅 25.10.2026 👁️ 3
Manchester United - Michael Carrick future as manager under major threat
Michael Carrick's future as Manchester United manager is under major threat following the home loss to Bournemouth on Sunday.
Hvað á að gera við graskersgumsið?
📅 25.10.2026 👁️ 3
Hvað á að gera við graskersgumsið?
Senn líður að hrekkjavöku sem vinnur sér sífellt sterkari sess sem tyllidagur hér á landi. Grasker og annar varningur tengdur hátíðinni er áberandi í ...
Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í inn­viði - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 3
Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í inn­viði - Vísir
Ásthildur Lóa Þórsdóttir, þingmaður Flokks fólksins úr Suðurkjördæmi, segist deila áhyggjum íbúa á svæðinu vegna gjaldtöku á ferðamannastöðum. Staðrey...
Opposition leader María Machado returns to Venezuela
📅 25.10.2026 👁️ 4
Opposition leader María Machado returns to Venezuela
Machado had left the country just a month before the US government seized Venezuelan President Nicolás Maduro.
„Jón Gnarr er ein mesta príma­donna Ís­lands­sögunnar“ - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 4
„Jón Gnarr er ein mesta príma­donna Ís­lands­sögunnar“ - Vísir
Össur Skarphéðisson, fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar og utanríkisráðherra ræddi málefni Viðreisnar í Sprengisandi á Bylgjunni í morgun. Sagði h...
Skoðar að hækka fram­lag til Loftbrúarinnar - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 4
Skoðar að hækka fram­lag til Loftbrúarinnar - Vísir
„Við erum að skoða að bæta við fjármagni í Loftbrúna núna og fara í að styrkur á hvern fluglegg verði níu þúsund krónur,“ segir Eyjólfur í samtali við...
37 mótmælendur sagðir hafa slasast í Portúgal
📅 25.10.2026 👁️ 4
37 mótmælendur sagðir hafa slasast í Portúgal
37 mótmælendur sagðir hafa slasast í Portúgal Tjald­búðir hafa risið í Lissabon og Porto und­an­farnar vikur vegna hús­næð­is­verðs. Mótmælin eru hlut...
Innviðaráðherra vill hækka niðurgreiðslu Loftbrúar í 9000 krónur á fluglegg
📅 25.10.2026 👁️ 3
Innviðaráðherra vill hækka niðurgreiðslu Loftbrúar í 9000 krónur á fluglegg
Innviðaráðherra segir boðaðar breytingar á niðurgreiðslu Loftbrúar í endurskoðun.„Við erum að skoða að bæta við fjármagni í Loftbrú og fara þá í 9000 ...
Hinn grunaði með geð­klofa og fluttur á geð­deild - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 3
Hinn grunaði með geð­klofa og fluttur á geð­deild - Vísir
Árásin átti sér stað á föstudag í Yvelines-héraði sem er rétt vestan við París í Frakklandi. Hinn grunaði á að hafa ekið um bæinn Trappes og skotið út...
Tragedy as 15-month-old baby boy dies at home in south Tenerife
📅 25.10.2026 👁️ 4
Tragedy as 15-month-old baby boy dies at home in south Tenerife
A 15-month-old boy died at a home in Los Abrigos this morning, Sunday 25th October, despite efforts by emergency medical teams to save him.Guardia Civ...
Suspect in deadly Paris suburb shooting sent for psychiatric observation
📅 25.10.2026 👁️ 4
Suspect in deadly Paris suburb shooting sent for psychiatric observation
He will be observed to evaluate whether his "psychiatric health is compatible with pursuing his interrogation", authorities said.