Landskjörstjórn segist hafa orðið vör við að óvenjumargir deili ljósmyndum af kjörseðlum sínum í þjóðaratkvæðagreiðslunni. Framkvæmdastjóri segir fólk hvatt til að gera það ekki en lögin kveði ekki á um refsingu eða annars konar afleiðingar fyrir að gera slíkt.
„Þetta er óvenjumikið núna. Við höfum bent á að að leynd atkvæðagreiðslu er ein af grundvallarreglum lýðræðislegra kosninga,“ segir Ástríður Jóhannesdóttir, segir Ástríður Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri Landskjörstjórnar.
Hún segir þetta erfitt að eiga við og það hafi í raun engar afleiðingar að birta myndir af kjörseðlum.
„Þetta er ekki skýrt bannað í kosningalögum en það er hins vegar kveðið á um það í að kosningar eigi að vera leynilegar, þannig þetta rekst svolítið á hvort annað. Lögin kveða ekki skýrt á um að þetta sé refsivert eða hafi einhverjar sérstakar afleiðingar,“ segir Ástríður.
Hún segir að landskjörstjórn muni leggja meiri áherslu á fræðsluefni gegn myndbirtinum. Það sé kjósendum í hag að kosningum og atkvæðagreiðslum sé haldið leyndum.
„Verndin snýst um að kjósandinn sé ekki þvingaður til að greiða atkvæði á ákveðinn hátt og sanna það með því að birta mynd af atkvæðinu sínu,“ segir Ástríður.