Óttast um fram­tíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað - Vísir

Óttast um fram­tíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað - Vísir

Óttast um fram­tíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað - Vísir

Ámundi Loftsson og Unnur Garðarsdóttir hafa að eigin sögn reynt árum saman að finna viðeigandi úrræði fyrir dóttur sína. Fyrst í Noregi, þangað sem fjölskyldan flutti í þeirri von að Auður Lilja fengi ný tækifæri, og síðar á Íslandi eftir að fjölskyldan flutti aftur heim.

Það sem þau segjast óska eftir er ekki aðeins húsnæði, heldur heildstæð lausn; öruggt búsetuúrræði, aukinn stuðningur í daglegu lífi, félagsleg virkni og aðstoð sem geti rofið þá einangrun sem þau segja Auði Lilju hafa fest í.

Auður Lilja hefur veitt samþykki sitt fyrir því að foreldrar hennar segi sögu hennar.

„Árum saman höfum við leitað úrlausnar á aðstæðum hennar og alltaf gengið á veggi kerfisins,“ segir Ámundi.

Hann segir sögu dóttur sinnar ekki aðeins vera sögu af fötlun eða stuðningsþörf. Hún sé líka saga af konu sem var virk, vinnusöm og félagslega mun betur stödd áður en fjölskyldan flutti til Noregs. Þar hafi hlutirnir farið að breytast.

Unnur lýsir sömu breytingu. Hún segir dóttur sína hafa verið mun virkari, opnari og léttari í lund áður en fjölskyldan flutti til Noregs. Þá hafi hún verið glaðari, félagslega virkari og vanari því að hafa fasta rútínu, skóla, verkefni og félagsskap í kringum sig. Að sögn Unnar varð breytingin á Auði Lilju smám saman eftir flutninginn til Noregs. Í Noregi hafi vantað fastmótaða dagskrá og verkefni. Þrátt fyrir það hafi orðið sífellt erfiðara að drífa Auði Lilju af stað og fá hana til að taka þátt í öðru en því sem hún sjálf festist í.

„Við erum rosknir foreldrar sem höfum áhyggjur af framtíð dóttur okkar,“ segja þau.

Auður Lilja er á 37. aldursári og er næstyngst fimm alsystkina. Hún greindist með um fimmtíu prósent þroskaskerðingu þegar hún var á fjórða ári. Fyrstu árin bjó fjölskyldan á Lautum í Reykjadal í Þingeyjarsveit. Hún var í leikskóla á Laugum og hóf síðar grunnskólagöngu í Litlulaugaskóla. Þar fékk hún, að sögn Ámunda og Unnar, mjög góðan stuðning.

Auður Lilja greindist með um fimmtíu prósent þroskaskerðingu þegar hún var á fjórða ári. Foreldrar hennar segja hana þó alltaf hafa tekið vel leiðsögn og getað tileinkað sér ný verkefni.Aðsend

„Það var ráðinn sérkennari til að annast hana og henni gekk vel,“ segja þau.

Sem barn átti Auður Lilja erfitt með líkamlegt jafnvægi og fór í sjúkraþjálfun til Húsavíkur. Hún fór einnig á hestbak og Ámundi segir það hafa gefist vel. Þegar hún var sex og sjö ára fór hún í sumarbúðir fyrir fötluð börn að Botni í Eyjafjarðarsveit. Síðar flutti fjölskyldan til Akureyrar, þar sem Auður Lilja var einn vetur í Brekkuskóla með stuðningi inni í bekk. Ári síðar flutti fjölskyldan suður, fyrst til Reykjavíkur og síðan Kópavogs. Auður Lilja hóf þá nám í Öskjuhlíðarskóla og lauk þar grunnskólagöngu.

„Hún kom vel út úr þessu námi og þar komu í ljós hæfileikar hennar í ýmiss konar handverki. Hún vann til verðlauna á því sviði.“

Keppti á Special Olympics

Eftir að fjölskyldan flutti suður byrjaði Auður Lilja í fimleikum hjá Gerplu í Kópavogi. Hún stundaði fimleika í átta ár og náði þar góðum árangri. Hún var tvívegis valin í hóp keppenda á Special Olympics, fyrst í Róm árið 2006 og síðan í Shanghai árið 2007.

Auður Lilja stundaði fimleika hjá Gerplu í átta ár og var tvívegis valin á Special Olympics, í Róm árið 2006 og Shanghai árið 2007. Þar vann hún til verðlauna.Aðsend

„Hún vann þar til verðlauna,“ segir Ámundi.

Honum er sérstaklega minnisstætt að bera saman líkamlegt atgervi Auðar Lilju á þessum tíma við stöðu hennar í dag. Hún keppti meðal annars í æfingum á jafnvægisslá. Síðar, þegar hún var í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti, tók hún tvisvar þátt í göngu um Laugaveginn milli Landmannalauga og Þórsmerkur.

„Það fór sú saga af henni að halda hafi þurft aftur af henni svo hún gengi ekki gönguhópinn af sér.“

Auður Lilja var í  Fjölbrautaskólanum í Breiðholti í fjóra vetur. Hún ferðaðist sjálf til og frá skóla með strætó og hefur, að sögn föður hennar, farið allra sinna ferða með strætó síðan þá. Eftir námið fór hún í starfsþjálfun hjá Örva og fékk í kjölfarið vinnu hjá matvælafyrirtækinu Í einum grænum. Þar vann hún í rúm fimm ár.

„Hún fékk afar góðan vitnisburð fyrir mætingar og alla frammistöðu. Hún var stundvís, vandvirk og kom vel fram.“

Þetta er sá hluti sögunnar sem foreldrar hennar leggja hvað mesta áherslu á, að Auður Lilja hafi verið manneskja sem ekki sat aðgerðalaus heima. Hún hafi verið virk, sinnt vinnu, ferðast sjálf, tekið þátt í íþróttum og staðið sig vel innan þess ramma sem hún þurfti.

„Hún tekur vel leiðsögn og á gott með að tileinka sér það sem hún lærir.“

Fluttu til Noregs með vonir um ný tækifæri

Snemma vetrar 2014 fóru Ámundi og Unnur að huga að brottflutningi frá Íslandi. Noregur varð fyrir valinu, meðal annars vegna þess að Unnur hafði áður verið þar í skóla og hafði nokkur tök á norsku. Unni bauðst vinna í Noregi og tók hún henni. Á þessum tíma hafði Ámundi líka hug á að fá vinnu í Noregi, en aðstæður þeirra á Íslandi leyfðu það ekki á þeim tíma.

Ámundi bætir við að það hafi aldrei komið annað til greina en að Auður Lilja færi með móður sinni til Noregs.

„Reyndar var það ein af ástæðum þess að við réðumst í þennan flutning; að víkka hennar sýn á heiminn og hjálpa henni við að auka við reynslu sína utan heimalandsins.“

Í byrjun árs 2015 flutti Auður Lilja með móður sinni til Noregs. Fjölskyldan hafði trú á því að þar, í því sem Ámundi kallar velferðarlandið Noreg, myndi hún fá starf við hæfi og aðstoð við að aðlagast nýjum aðstæðum. Raunin var þó önnur, að sögn Ámunda.

Þær mæðgur hafi leitað til NAV (norska vinnu- og velferðarstofnunin)  í Sandnes, útskýrt að þær væru nýfluttar til landsins og að Auður Lilja þyrfti aðstoð við að fá vinnu og aðlagast nýjum heimkynnum. Viðmótið hafi verið annað en þær bjuggust við.

„Tilfinning þeirra var sú að þær væru að flækjast fyrir og sóa tíma þeirra sem þarna voru til svara.“

Þeim hafi þá verið vísað til sveitarfélagsins, Sandnes kommune, og  fengið þar betra viðmót og upplýsingar um ýmis frístundatilboð fyrir fatlað fólk. Auður Lilja fékk meðal annars fylgdarmannakort sem veitir fylgdarmanni frían aðgang á ýmsa staði, til dæmis í bíó og strætó.

En þegar kom að atvinnumálum var þeim sagt að þau væru alfarið á hendi NAV.

„Við vorum hissa á því að NAV hefði sent okkur til sveitarfélagsins með það mál.“

Fjölskyldan flutti til Noregs í þeirri von að Auður Lilja fengi ný tækifæri, atvinnu og stuðning við hæfi. Að sögn foreldranna varð raunin önnur.Aðsend

Send milli kerfa

Ámundi lýsir samskiptunum við norsk kerfi sem löngu ferli þar sem ábyrgðin hafi sífellt verið færð til. NAV hafi vísað á sveitarfélagið. Sveitarfélagið hafi vísað aftur á NAV. Síðar hafi Statsforvalteren í Rogaland vísað kvörtun fjölskyldunnar frá sér og aftur á NAV.

„Þetta varð alltaf þannig að við vorum send eitthvert annað,“ segir hann.

Eftir frekari tilraunir hjá NAV var Auði Lilju úthlutað aðstoðarkonu til að fara yfir hennar mál. Umsókn var send til Sandnes Proservis, vinnustaðar fyrir fatlað fólk í bænum. Í nóvember 2017 fékk fjölskyldan boð um viðtal.

„Við vorum að vonum kát með það,“ segir Ámundi.

Unni fannst vel tekið á móti þeim. Starfsemin var kynnt og rætt um að Auður Lilja talaði litla norsku en væri góð í ensku. Þær mæðgur fóru þaðan vongóðar.

Í mars 2018 barst hins vegar bréf um að Auður Lilja fengi ekki vinnu þar. Ástæðan var sögð sú að hún talaði ekki norsku.

„Þá vöknuðu spurningar. Af hverju kom það ekki fram í viðtalinu? Af hverju vorum við látin bíða í fjóra mánuði eftir þessari niðurstöðu sem væntanlega lá fyrir í upphafi?“

Eftir þetta segjast þau hafa misst trúna á að kerfið í Noregi myndi leysa málið. Það eina sem Auður Lilja fékk, að þeirra sögn, var þátttaka í klúbbi fyrir skapandi konur, einu sinni í viku í tvo tíma.

„Það var það eina sem norskt þjóðfélag bauð henni.“

Skattkröfur ofan á allt annað

Samhliða þessu glímdi fjölskyldan við annað mál: ítrekaðar skattkröfur frá norska skattinum.

Auður Lilja hafði engar tekjur í Noregi. Hún fékk örorkubætur frá Íslandi og greiddi skatt af þeim hér heima. Samkvæmt gögnum sem Ámundi hefur tekið saman leitaði hann meðal annars til Tryggingastofnunar vegna stöðu hennar og fékk þau svör að hún héldi íslenskum örorkulífeyri þrátt fyrir flutning til Noregs. Hún væri með varanlegt örorkumat á Íslandi.

Ámundi segir norska skattinn engu að síður hafa ítrekað gert kröfur á Auði Lilju vegna greiðslnanna.

„Eftir fyrstu skattaskil á Íslandi var hún krafin um að greiða skatt af þessum aurum í Noregi líka. Þessar skattakröfur komu svo á hverju ári öll þau sex ár sem þetta Noregsævintýri stóð,“ segir Ámundi.

Foreldrarnir skrifuðu bréf, sendu útskýringar og leituðu lögmannsaðstoðar með tilheyrandi kostnaði. Kröfurnar voru felldar niður en komu svo aftur.

„Alltaf var því lofað að þetta myndi ekki endurtaka sig, en allt kom fyrir ekki. Þetta byrjaði alltaf aftur. Þetta var sérstaklega erfitt vegna þess að greiðslurnar voru ekki háar til að byrja með. Það er ekki einu sinni hægt að lifa af á þessum aurum þótt skatturinn sé ekki líka að kroppa í þá.“

„Hún var horfin inn í heim hljóðbóka og tölvuleikja“

Það sem Ámundi segir hafa verið alvarlegast sé þó ekki eitt bréf, ein synjun eða ein stofnun, heldur breyttar aðstæður Auðar Lilju sjálfrar.

„Henni fannst hún ekki vera eins velkomin til Noregs og hún hafði vænst. Okkur þótti það ekki heldur. Þó trúðum við ekki öðru en að velferðarríkið Noregur tæki henni vel, eins og hverjum öðrum, og hún myndi fá að taka þátt í norsku þjóðfélagi í samræmi við vilja hennar og getu.

Þetta leiddi af sér félagslega einangrun hennar og nánast algert iðjuleysi. Framan af tímanum í Noregi eyddi hún mestum tíma sínum í bóklestur en þegar frá leið varð hún heltekin af skjáfíkn. Tími hennar fór í hljóðbækur og tölvuleiki, ýmist í síma eða borðtölvu,“ segir Ámundi og bætir við að líkamlegri heilsu dóttur hans hafi sömuleiðis hrakað. Kyrrseta og lítil virkni hafi haft áhrif á hreyfigetu hennar. 

Hann rifjar upp göngu sem fjölskyldan fór í í Noregi á lítið fjall, Dalshnuten, skammt frá heimili þeirra. Þar hafi komið í ljós hversu mikið hún hafði misst.

„Til samanburðar má geta þess að hún keppti í æfingum á jafnvægisslá á tvennum Special OL. Þegar hún var í framhaldsskóla gekk hún tvisvar Laugaveginn frá Landmannalaugum niður í Þórsmörk með hópi fólks og arkaði hún þá á undan öllum. Fararstjórinn átti fullt í fangi með að halda aftur af henni.“

Unnur tekur í sama streng.

„Eftir að hún hafði lítið fyrir stafni fór hún að breytast. Það var eins og tilganginn vantaði einhvern veginn hjá henni. Hún hafði alltaf verið svo virk áður; var í skóla og hafði mikinn félagsskap.“

Unnur lýsir því að Auður Lilja þurfi nú mikinn stuðning við daglegt líf og að oft þurfi mikið til að fá hana til að gera einföldustu hluti, jafnvel að koma að matborðinu. Hún segir að áður hafi Auður Lilja verið opin fyrir því að skapa og gera hluti, en nú sé erfitt að ná henni upp úr þeirri stöðu sem hún sé komin í.

Kvörtuðu til Statsforvalteren

Foreldrarnir skrifuðu Statsforvalteren í Rogaland (áður Fylkesmann) og lýstu stöðu Auðar Lilju. Þar komu þau á framfæri kvörtunum vegna skorts á atvinnuúrræðum fyrir hana í Noregi og vegna síendurtekinna skattkrafna.

Svar barst í júní 2021. Þar var beðist afsökunar á seinna svari en málinu að mestu vísað frá. Fram kom að mál sem tengdust vinnutengdri starfsemi og bótum, svo sem örorkubótum, féllu utan valdsviðs Statsforvalteren og heyrðu undir norsku vinnu- og velferðarstofnunina og NAV. Þá var tekið fram að málið varðaði að miklu leyti pólitíska forgangsröðun í málefnum fatlaðs fólks í Noregi.

„Þarna var okkur í raun vísað aftur þangað sem við höfðum áður leitað,“ segir Ámundi.

Í svarinu var, að hans sögn, ekkert fjallað um skattkröfurnar.

Þegar þetta var komið hafði fjölskyldan þegar ákveðið að flytja aftur til Íslands. Því varð ekki af frekari eftirfylgni í Noregi.

„Væntingar okkar til norskrar velferðar voru að engu orðnar,“ segir Ámundi.

Komin heim en enn á bið

Eftir heimkomu til Íslands hófu foreldrarnir að leita úrræða fyrir Auði Lilju hjá Kópavogsbæ. Hún sótti um íbúð hjá velferðarsviði Kópavogs sumarið 2022 og var sett á biðlista. Sú umsókn féll úr gildi ári síðar.

Ámundi segir fjölskyldunni ekki hafa verið sagt fyrr en sumarið 2025 að slíkar umsóknir þyrfti að endurnýja árlega og að þeim þyrftu að fylgja gögn frá Tryggingastofnun og Skattinum. Sótt var aftur um en þeirri umsókn var synjað innan fárra daga. Hún sótti aftur um í mars og fékk þá einnig synjun.

Í tölvupósti frá ráðgjafa hjá Kópavogsbæ í apríl síðastliðnum kemur fram að umsókn Auðar Lilju um félagslegt leiguhúsnæði hafi verið synjað 18. mars 2026. Í kjölfarið hafi ráðgjafinn sent inn undanþágubeiðni til úthlutunarhóps, sem samþykkti umsóknina. Umsóknin væri því komin á biðlista.

Staðan nú er sú að umsókn Auðar Lilju um félagslegt leiguhúsnæði hjá Kópavogsbæ er komin á biðlista eftir að undanþágubeiðni ráðgjafa var samþykkt. Foreldrar hennar telja það þó ekki nægja, þar sem þau segja að málið þurfi tafarlausa úrlausn og að biðlisti tryggi hvorki nægan stuðning né lausn á félagslegri einangrun hennar.

Ámundi og Unnur segjast ekki una þeirri afgreiðslu.

„Við teljum að málið þurfi tafarlausa úrlausn,“ segir Ámundi.

Foreldrarnir hafa einnig leitað til Réttindagæslu fatlaðra og óskað eftir viðtali um hvað til bragðs skuli taka. Þau sendu einnig erindi til félags- og húsnæðismálaráðuneytisins og óskuðu eftir aðstoð við að koma hreyfingu á málið. Að sögn Ámunda fengu þau ekki svar umfram móttökustaðfestingu.

Foreldrarnir segja að félagsleg einangrun, iðjuleysi, skjánotkun og kyrrseta hafi haft alvarleg áhrif á andlegt og líkamlegt ástand Auðar Lilju. Aðsend

Fékk vinnu en er einangruð utan hennar

Það hefur þó ekki allt verið neikvætt eftir heimkomuna. Sumarið 2022 fékk fjölskyldan ábendingu frá velferðarsviði Kópavogs um að Auður Lilja gæti sótt um starfsþjálfunarnám hjá Project Search. Hún fékk inni þar um haustið og lauk þeirri önn.

Í framhaldinu fékk hún vinnu í mötuneyti hjá Ási styrktarfélagi við Ögurhvarf haustið 2023.

„Henni vegnar vel í því starfi,“ segir Ámundi. „En utan vinnutíma lifir hún mjög einangruðu lífi og vill helst ekki taka þátt í félagslífi. Daglegt líf hennar einkennist því að miklu leyti af kyrrsetu og mikilli skjánotkun. Hún hefur vanið sig á kaup á alls kyns ruslfæði í miklu magni og er hömlulaus í neyslu á því öllu. Líkamlegt og andlegt ástand hennar ber þessu glöggt vitni. Hún er skapstirð og á erfitt með hreyfingu og ástandið fer ört versnandi.“

Unnur segir að Auður Lilja sé ánægð í vinnunni og hafi félagsskap þar. Utan vinnu vanti hins vegar mikið upp á stuðning og félagslega virkni.

Unnur telur að Auður Lilja þurfi fyrst og fremst félagsskap, virkni og einhvern sem geti verið með henni og hjálpað henni af stað í daglegu lífi.

Auður Lilja fékk liðveislu um tíma og Ámundi segir það hafa reynst vel. Hún hafi fengið félagsskap ungrar konu í um þrjá mánuði, en sú kona hafi síðan farið í önnur störf. Auður Lilja hafi aftur sótt um sams konar liðveislu og sé nú á biðlista.

Unnur segir að liðveislan hafi reynst Auði Lilju mjög vel. Liðveislan hafi farið með henni á kaffihús, í búðir og annað slíkt og það hafi gert henni gott.

„En þegar liðveislan hætti sóttum við um þetta aftur. Þá ræddi félagsráðgjafinn hennar þetta við okkur og sagði bara hreint út: „Ég get alveg sótt um þetta, en það eru engir peningar settir í þetta.“ Þannig að það mun líklega engin liðveisla koma aftur. Hún sagði það hreint út: „Það eru engir peningar settir í þetta.““

„Það þarf að finna henni umhverfi þar sem hún er ekki bara ein með skjáinn,“ segir Ámundi.

Foreldrarnir komin á áttræðisaldur

Það sem brennur mest á Ámunda er framtíðin.

Hann segir að þau geti ekki endalaust verið eina öryggisnet dóttur sinnar. Það þurfi að búa til framtíðarlausn áður en þau hafi ekki lengur burði til að halda utan um allt.

Unnur lýsir því að baráttan við kerfið taki mikið á. Þau séu orðin þreytt á því að þurfa alltaf að halda utan um allt, fylgja henni eftir og hugsa fyrir henni. Hún segir þau farin að hugsa meira um eigið líf og þann tíma sem þau eiga eftir, en að á sama tíma þurfi þau alltaf að hafa stöðu Auðar Lilju í huga.

„Þegar við hugsum um framtíðina, tíu eða tuttugu ár fram í tímann, þá erum við í rauninni að tala um spurninguna: Hvað verður um hana þegar við erum farin? Við erum komin á þann aldur að við viljum geta hugsað meira um okkur sjálf og hvað okkur langar að gera með þann tíma sem við eigum eftir. Við eigum í rauninni ekki að þurfa að standa í þessu. Einhver annar ætti að vera búinn að taka þetta yfir.“

Foreldrarnir óska eftir heildstæðri framtíðarlausn fyrir Auði Lilju, ekki aðeins húsnæði. Þau vilja öruggt búsetuúrræði, félagslega virkni, liðveislu og daglegt utanumhald áður en þau sjálf geta ekki lengur sinnt því hlutverki.Aðsend

Í þeirra huga sé málið því ekki aðeins spurning um húsnæði, þjónustu eða biðlista. Það snúist um hvort dóttir þeirra eigi raunhæft líf þegar foreldrarnir geti ekki lengur verið til staðar.

„Auður Lilja hefur alla tíð verið háð okkur foreldrum sínum í daglegu lífi. Nú þegar við erum komin á áttræðisaldur er ljóst að sú staða getur ekki haldið áfram.“

Þau horfa til baka og sjá konu sem var virk, dugleg og þátttakandi; hún vann á almennum vinnustað, fékk góð meðmæli, keppti erlendis og gekk langar fjallaleiðir. Síðan [AL1] horfa þau á stöðuna í dag: félagslega einangrun, kyrrsetu, skjánotkun, versnandi heilsu og foreldra sem eldast.

Unnur lýsir daglegri ábyrgð þeirra foreldranna þannig að þau þurfi stöðugt að hugsa um líf Auðar Lilju, föt, rútínu og það sem þurfi að gera, þar sem Auður Lilja hafi ekki alltaf sjálf yfirsýn yfir slíkt.

„Það verður eitthvað að fara að gerast. Við getum ekki verið svona endalaust. Við verðum ekki alltaf hér til að hjálpa henni.“

„Að okkar mati er hún komin í hættulegt ástand. Við höfum verulegar áhyggjur af þessu ástandi og að okkar mati er það algert forgangsatriði að rjúfa félagslega einangrun hennar og finna henni umhverfi sem kallar á meiri virkni og félagsleg tengsl. Reynslan hefur sýnt að hún tekur vel leiðsögn og á gott með að tileinka sér það sem hún lærir.“

Kópavogsbær vísar til reglna og faglegs mats

Vísir leitaði viðbragða Kópavogsbæjar vegna máls Auðar Lilju, þar á meðal vegna gagnrýni foreldra hennar á bið eftir félagslegu húsnæði, skort á stuðningsúrræðum og stöðu umsókna hennar.

Í skriflegu svari frá Sigríði Björg Tómasdóttur, miðlunarstjóra Kópavogsbæjar, kemur fram að bærinn geti ekki veitt upplýsingar um einstök mál.

„Almennt eru umsóknir um félagslegt húsnæði og stuðningsúrræði metnar samkvæmt lögum og reglum sveitarfélagsins og á grundvelli faglegs mats á þörf og forgangi. Umsækjendum er veitt rökstuðningur eftir atvikum og leiðbeint um úrræði, þar á meðal möguleika á endurmati eða kæru.“

#dóttur #framtíð #sinnar #óttast #þegar


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262884647d/ottast-um-framtid-dottur-sinnar-thegar-thau-geta-ekki-lengur-hjalpad

📰 Aðrar fréttir

Boots sold in $8.9bn deal to Canadian billionaire family
📅 07.10.2026 👁️ 0
Boots sold in $8.9bn deal to Canadian billionaire family
The sale of the High Street chain was announced on Wednesday.
Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin - Vísir
Ásgeir var í viðtali við fréttastofu spurður hvernig fyrirtæki og sveitarfélög gætu staðið við loforð um að hækka verð og gjaldskrár ekki umfram 2,5 p...
„Eina vandamálið er að hún er kannski systir mín“
📅 07.10.2026 👁️ 1
„Eina vandamálið er að hún er kannski systir mín“
„Það gengur ótrúlega vel hjá mér og nýju kærustunni minni, sambandið er frábært og við pössum svo vel saman. Eina vandamálið er að hún er kannski syst...
Einn frægasti líkamsræktaráhrifavaldur heims fluttur í skyndi á sjúkrahús vegna hjartavandamála
📅 07.10.2026 👁️ 0
Einn frægasti líkamsræktaráhrifavaldur heims fluttur í skyndi á sjúkrahús vegna hjartavandamála
Joey Swoll, einn þekktasti líkamsræktaráhrifavaldur heims, tilkynnti að hann hafi verið fluttur í skyndi á sjúkrahús á laugardagsmorgun vegna hjartava...
Flugfreyja hjá Icelandair vill að aldraður læknir greiði henni eina og hálfa milljón vegna líkamsárásar og hótunar
📅 07.10.2026 👁️ 1
Flugfreyja hjá Icelandair vill að aldraður læknir greiði henni eina og hálfa milljón vegna líkamsárásar og hótunar
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur ákært mann fyrir líkamsárás, hótun og brot gegn loftferðum. Samkvæmt frétt Vísis er ákærði íslenskur læknir á nír...
Krefst skýringa á því hvers vegna annað eigi að gilda um Aþenu en önnur íþróttafélög í Reykjavík - „Hvar eru þau gögn?“
📅 07.10.2026 👁️ 1
Krefst skýringa á því hvers vegna annað eigi að gilda um Aþenu en önnur íþróttafélög í Reykjavík - „Hvar eru þau gögn?“
Töluvert hefur verið deilt um aðstæður körfuboltafélagsins Aþenu í Efra-Breiðholti. Brynjar Karl Sigurðsson þjálfari og einn helsti forvígismaður féla...
Sjúkt dýraklám fannst hjá Andrew Tate – Sýndi manneskjur í samförum við tvær dýrategundir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Sjúkt dýraklám fannst hjá Andrew Tate – Sýndi manneskjur í samförum við tvær dýrategundir
Áhrifavaldurinn Andrew Tate, sem er grunaður um kynferðisbrot og var framseldur til Bretlands, var með dýraklám í símanum sínum. Hann tók einnig upp k...
Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tón­list í pólitískum á­róðri - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tón­list í pólitískum á­róðri - Vísir
Sverrir er einn þekktasti tónlistarmaður landsins og situr á þingi fyrir Samfylkinguna í Suðurkjördæmi. Hann tók sæti sem varaþingmaður fyrir Víði Rey...
Gera þarf kennara að stórstjörnum
📅 07.10.2026 👁️ 0
Gera þarf kennara að stórstjörnum
Einn helsti sérfræðingur OECD í Pisa-prófunum telur að Íslendingar geti bætt sig verulega með því að sýna kennurum og menntun meiri virðingu. Hann seg...
Nóbelsverðlaun fyrir að skilja að sameindir – markaði tímamót í lyfjaframleiðslu
📅 07.10.2026 👁️ 0
Nóbelsverðlaun fyrir að skilja að sameindir – markaði tímamót í lyfjaframleiðslu
Efnafræðingarnir Henri Kagan frá Frakklandi og Kenso Soai frá Japan fengu í morgun Nóbelsverðlaunin í efnafræði fyrir að uppgötva aðferð til að aðskil...
Geta ekki hafnað viðurkenningu á staðgöngumæðrun
📅 07.10.2026 👁️ 0
Geta ekki hafnað viðurkenningu á staðgöngumæðrun
EFTA-dómstóllinn komst í dag að þeirri niðurstöðu að íslensk stjórnvöld gætu hafa brotið gegn rétti barns með því að viðurkenna það ekki sem barn föðu...
Ru­bio hafi stað­fest varnar­skuld­bindingar gagn­vart Ís­landi - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Ru­bio hafi stað­fest varnar­skuld­bindingar gagn­vart Ís­landi - Vísir
Heimsókn Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hingað til lands lauk í gær eftir fundi með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra og...
Breyti mynd­böndum af börnum að borða og dansa í barnaníðs­efni - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Breyti mynd­böndum af börnum að borða og dansa í barnaníðs­efni - Vísir
Guðný var til viðtals í Bítinu en fyrr í vikunni var greint frá því að tilkynnt um kynferðisbrot til lögreglu á fyrri árshelmingi hafi ekki verið flei...
Bein út­sending: Kennarar boða til tíðinda - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Bein út­sending: Kennarar boða til tíðinda - Vísir
Í tilkynningu frá KÍ segir að þetta sé í fyrsta sinn sem sambandið leggi fram sína sýn á þennan hátt.  Þar er einnig skrifað að íslenskt menntakerfi s...
Five arrested for inciting racial hatred outside Jewish group's headquarters, says Met
📅 07.10.2026 👁️ 0
Five arrested for inciting racial hatred outside Jewish group's headquarters, says Met
The Met Police say a "spontaneous protest" was staged outside the office of the Board of Deputies.
Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu - Vísir
Áður hefur verið greint frá því að tugir manna hafi verið settir í sóttkví í Síberíu í Rússlandi eftir að starfsmaður rannsóknarstofu sem hefur það að...
France protests: Use of stun grenades suspended
📅 07.10.2026 👁️ 0
France protests: Use of stun grenades suspended
France has halted the use of stun grenades after a 15-year-old boys hand was blown off during student protests.
Kona stungin til bana við mat­vöru­verslun í Malmö - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Kona stungin til bana við mat­vöru­verslun í Malmö - Vísir
Árásin átti sér stað í Bellevuegården-hverfi í Malmö um klukkan tíu í morgun að sænskum tíma, að því er kemur fram í frétt sænska ríkisútvarpsins. Kon...
Man who murdered ex-partner after his prison release is jailed
📅 07.10.2026 👁️ 0
Man who murdered ex-partner after his prison release is jailed
Robert Sabat is given a 17-year-minimum jail term for the fatal stabbing of his former partner.
Rob Burrow would be 'laughing but proud' about knighthood - Sinfield
📅 07.10.2026 👁️ 0
Rob Burrow would be 'laughing but proud' about knighthood - Sinfield
Sir Kevin Sinfield is knighted by the Prince of Wales at Windsor Castle.
Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin - Vísir
Ásgeir var spurður um stöðu kjarasamninga og afstöðu Höllu Gunnarsdóttur, formanns VR, til sambands launa og verðbólgu að loknum kynningarfundi Seðlab...
Sagði upp fimm konum þegar hún gaf honum úrslitakosti
📅 07.10.2026 👁️ 1
Sagði upp fimm konum þegar hún gaf honum úrslitakosti
Leikarinn Michael Douglas lætur allt flakka í nýrri sjálfsævisögu, One Helluva Ride.Hann segir meðal annars frá upphafi sambands hans og eiginkonu sin...
Katrín Lóa opnar sig um óhugnanlega upplifun í Liverpool
📅 07.10.2026 👁️ 1
Katrín Lóa opnar sig um óhugnanlega upplifun í Liverpool
Katrín Lóa Kristrúnardóttir varð fyrir alvarlegri áreitni á bar í Liverpool á Englandi um helgina, þegar hún sagði dyraverðinum hvað gerðist vildi han...
Sambandið með nýju kærustunni frábært – „Eina vandamálið er að hún er kannski systir mín“
📅 07.10.2026 👁️ 1
Sambandið með nýju kærustunni frábært – „Eina vandamálið er að hún er kannski systir mín“
„Það gengur ótrúlega vel hjá mér og nýju kærustunni minni, sambandið er frábært og við pössum svo vel saman. Eina vandamálið er að hún er kannski syst...
Getur tekið heilu kynslóðirnar að ná jafnvægi eftir sameiningu
📅 07.10.2026 👁️ 1
Getur tekið heilu kynslóðirnar að ná jafnvægi eftir sameiningu
Það getur tekið heilu kynslóðirnar að sníða vankantana af sameiningu sveitarfélaga og ágreiningsefnin geta verið afar fjölbreytt, segir Eva Marín Hlyn...
Sex at­vinnu­lausir um hvert laust starf - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Sex at­vinnu­lausir um hvert laust starf - Vísir
Þróunin á vinnumarkaði var meðal þess sem Seðlabankinn fjallaði um á kynningarfundi í morgun eftir að peningastefnunefnd ákvað að halda meginvöxtum ób...
500 krónur mun kosta að aka yfir nýja Ölfusárbrú
📅 07.10.2026 👁️ 1
500 krónur mun kosta að aka yfir nýja Ölfusárbrú
Um 80 manns vinna við smíði Ölfusárbrúarinnar og er verkið töluvert á undan áætlun. Brúin verður um tvö þúsund tonn að þyngd.Það er allt á fullu við b...
Tékkland tekur ekki þátt í Eurovision
📅 07.10.2026 👁️ 1
Tékkland tekur ekki þátt í Eurovision
Tékkneska ríkisútvarpið tilkynnti í dag að Tékkland verði ekki meðal þátttakenda í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, eða Eurovision, á næsta ári...
Hefur áhyggjur af því að félög sem sömdu ekki í gær reyni að heimta meira
📅 07.10.2026 👁️ 1
Hefur áhyggjur af því að félög sem sömdu ekki í gær reyni að heimta meira
Hagkerfið er byrjað að kólna; hagvöxtur minnkar og atvinnuleysi eykst, og von er til þess að verðbólga fari minnkandi á næsta ári þar sem áhrif olíuve...
Police rescue young woman from sea in Playa de las Américas
📅 07.10.2026 👁️ 1
Police rescue young woman from sea in Playa de las Américas
National Police officers have rescued a 24-year-old woman who was struggling to stay afloat in the sea off Playa de las Américas in South TenerifeThe ...
Raflína í Moldóvu nefnd eftir Trump
📅 07.10.2026 👁️ 1
Raflína í Moldóvu nefnd eftir Trump
Ný raflína sem tengja á Moldóvu við Rúmeníu verður nefnd eftir Donald Trump Bandaríkjaforseta og mun bera nafnið „Trump Liberty Line“.Bandaríkin leggj...
Bein út­sending: Á­skoranir á norður­slóðum - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Bein út­sending: Á­skoranir á norður­slóðum - Vísir
„Norðurslóðir standa nú frammi fyrir töluverðum áskorunum. Loftslagsbreytingar eru að endurmóta vistkerfi með áður óþekktum hraða, á sama tíma og auki...
Samfylking og Framsókn ræða meirihlutamyndun í Suðurnesjabæ
📅 07.10.2026 👁️ 1
Samfylking og Framsókn ræða meirihlutamyndun í Suðurnesjabæ
Samfylkingin og Framsóknarflokkurinn í Suðurnesjabær eiga í óformlegum samtölum um myndun nýs meirihluta. Meirihluti Samfylkingar og D-listans sprakk ...
Banda­rískir her­menn í út­göngu­banni eftir morð - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Banda­rískir her­menn í út­göngu­banni eftir morð - Vísir
Devin Jacob Ballard, tuttugu ára liðþjálfi í bandaríska hernum, er grunaður um að hafa orðið Önna Yagi, 39 ára japanskri konu, að bana á hóteli í borg...
Plans to limit peak-season flight prices in the Canary Islands
📅 07.10.2026 👁️ 1
Plans to limit peak-season flight prices in the Canary Islands
Temporary price caps on flights between the Canary Islands and mainland Spain are being considered to help residents facing soaring fares during Chris...
Glap­ræði að hafna væntan­legri launa­hækkun - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Glap­ræði að hafna væntan­legri launa­hækkun - Vísir
Í gær undirritaði Breiðfylkingin, sem samanstendur af Starfsgreinasambandinu, Eflingu, Samiðn og Byggiðn, undir framlengingu kjarasamninga. Aðspurð hv...
Brynhildur fagnaði 26 árum í Sykursalnum
📅 07.10.2026 👁️ 2
Brynhildur fagnaði 26 árum í Sykursalnum
Áhrifavaldurinn Brynhildur Gunnlaugsdóttir fagnaði 26 ára afmæli sínu í Sykursalnum í Grósku.Hún hélt heljarinnar búningapartí og var klædd sem poppdí...
Vin­sældirnar skipti miklu máli fyrir arf­leifð Johns Snorra - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Vin­sældirnar skipti miklu máli fyrir arf­leifð Johns Snorra - Vísir
Heimildarmynd um hinstu för íslenska fjallgöngugarpsins Johns Snorra upp á tind fjallsins K2 að vetri til árið 2021 kom út á dögunum á streymisveitu A...
Segja bók um Guðmund Elíasson vera furðuverk uppfullt af rangfærslum – Systkinum hans fækkað úr fimm í þrjú
📅 07.10.2026 👁️ 2
Segja bók um Guðmund Elíasson vera furðuverk uppfullt af rangfærslum – Systkinum hans fækkað úr fimm í þrjú
Þau Örn Ólafsson, Ingibjörg Ólafsdóttir og Pjetur Hafstein Lárusson gera alvarlegar athugasemdir við nýja bók um Guðmund Elíasson myndhöggvara. Bókin ...
Christa Pike framdi annan hrottalegan glæp í fangelsinu
📅 07.10.2026 👁️ 2
Christa Pike framdi annan hrottalegan glæp í fangelsinu
Christa Pike, hinn dauðadæmdi fangi í Tennessee sem lifði af aftökutilraun í lok síðasta mánaðar, er vöknuð úr dái. Ekki eru allir á einu máli um hvað...
Kjara­bar­átta kennara bitni á námi barnanna - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 2
Kjara­bar­átta kennara bitni á námi barnanna - Vísir
„Það vakti verðskuldaða athygli í upphafi árs þegar Inga Sæland, nýr mennta- og barnamálaráðherra, gekk vasklega fram með aðgerðir til að bæta íslensk...
Ex-bankers jailed for rigging rates have convictions quashed
📅 07.10.2026 👁️ 2
Ex-bankers jailed for rigging rates have convictions quashed
Jay Merchant, Jonathan Mathew, Philippe Moryoussef, Alex Pabon, Colin Bermingham had their convictions overturned by the Court of Appeal.
Sól­veig Anna segir glap­ræði að segja upp samningum - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 2
Sól­veig Anna segir glap­ræði að segja upp samningum - Vísir
Fjallað verður um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu 12. Seðlabankastjóri sér ekki fram á vaxtalækkun fyrir áramót og segir skammsýni að legg...
Átta særð í hnífaárás í pólskum skóla
📅 07.10.2026 👁️ 2
Átta særð í hnífaárás í pólskum skóla
Átta hið minnsta eru særð eftir hnífaárás í borginni Ostrołęka í Póllandi í morgun. Samkvæmt frétt pólska ríkisútvarpsins eru fimm hinna særðu á barns...
Lækna-Tómas og Ár­mann skemmtu sér á safninu - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Lækna-Tómas og Ár­mann skemmtu sér á safninu - Vísir
Það var líf og fjör á þessari tvöföldu sýningaropnun. Sigurður Guðjónsson sýnir Hulu, seiðmagnað myndbandsverk sem er tekið í einni samfelldri, sextíu...
Fjögur börn meðal ní­tján látinna í á­rásum á af­mælis­degi Pútíns - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 2
Fjögur börn meðal ní­tján látinna í á­rásum á af­mælis­degi Pútíns - Vísir
Auk þeirra látnu eru að minnsta kosti sextíu aðrir sárir eftir árásir næturinnar, að sögn úkraínskra yfirvalda. Börnin fjögur voru á meðal þrettán man...
Leigubremsan „aug­ljós­lega mjög heimsku­leg“ - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 2
Leigubremsan „aug­ljós­lega mjög heimsku­leg“ - Vísir
Ásgeir lét ummælin falla á blaðamannafundi vegna vaxtaákvörðunar peningastefnunefndar í morgun. Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur Íslandsbanka, sp...
Hús­gagna­dagar hafnir í JYSK með allt að 40% af­slætti - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Hús­gagna­dagar hafnir í JYSK með allt að 40% af­slætti - Vísir
Björgvin Þór Smárason, verslunarstjóri JYSK á Selfossi, segir úrvalið og samspil verðs og gæða vera meðal helstu styrkleika fyrirtækisins. „Við erum m...
Miður að opinberir starfsmenn hafi ekki fengið að koma að borðinu
📅 07.10.2026 👁️ 4
Miður að opinberir starfsmenn hafi ekki fengið að koma að borðinu
Sonja Ýr Þorbergsdóttir formaður BSRB segir að stýrivaxtaákvörðun morgunsins komi ekki á óvart og sé í takt við spár. Peningastefnunefnd Seðlabanka Ís...
Reform internal inquiry says party did not break law over donations sting
📅 07.10.2026 👁️ 2
Reform internal inquiry says party did not break law over donations sting
Officials were recorded by undercover journalists discussing a potential way to secure foreign donations to the party.