Víkingur vann sinn níunda sigur í röð í Bestu deild karla í fótbolta í kvöld er liðið lagði Val, 5:1, á útivelli. Víkingur er með 28 stig, þremur stigum á undan KR í öðru sæti. Valur er í fimmta sæti með 15 stig.
Víkingar byrjuðu með látum og Helgi Guðjónsson skoraði fyrsta mark leiksins strax á 5. mínútu þegar hann nýtti sér mistök hjá Jakobi Franz Pálssyni og vippaði skemmtilega yfir Frederik Schram í marki Vals og í netið.
Gestirnir voru sterkari næstu mínútur og líklegri til að bæta við og annað markið kom á 34. mínútu. Jakob Franz var þá aftur í vandræðum en hann rann og Óskar Borgþórsson nýtti sér það, brunaði inn í teiginn og lagði boltann í bláhornið.
Aðeins tveimur mínútum síðar var staðan orðin 3:0 því Óskar skoraði sitt annað mark. Hann negldi þá boltanum í netið með höfðinu í teignum eftir fallega fyrirgjöf frá Ármanni Inga Finnbogasyni.
Voru hálfleikstölur því 3:0 og Víkingar með algjöra stjórn á leiknum.
Víkingar bættu við fjórða markinu á 52. mínútu þegar Óskar fullkomnaði þrennuna með skalla af stuttu færi eftir glæsilegan undirbúning hjá Karli Friðleifi Gunnarssyni.
Valur minnkaði muninn í 4:1 á 60. mínútu þegar varamaðurinn Emil Nönnu Sigurbjörnsson átti flotta sendingu inn fyrir á Tryggva Hrafn Haraldsson sem skoraði.
Leikurinn róaðist aðeins eftir það en Karl Friðleifur gerði fimmta markið á 84. mínútu með fallegu skoti í fjærhornið hægra megin í teignum. Reyndist það síðasta mark leiksins.