Hátt í þúsund manns mættu á stofnfund hreyfingarinnar Áfram Ísland, sem berst gegn því að aðildarviðræður við Evrópusambandið verði hafnar á ný. Fyrrverandi forseti Íslands segir óskynsamlegt að taka u-beygju frá því sem Ísland hefur áorkað á nær öllum sviðum frá því sjálfstæði náðist.
Hagsmunum Íslands best borgið utan ESB
„Hér er stofnfundur samtakanna Áfram Ísland, grasrótarsamtaka sem var hleypt af stokkunum fyrir nokkrum dögum þegar við opnuðum fyrir skráningar. Og gaman að segja frá því að hátt á þriðja þúsund manns hafa skráð sig til leiks og vilja taka þátt í baráttunni á næstu vikum,“ segir Halldór Benjamín Þorbergsson, hagfræðingur og einn stofnenda Áfram Ísland.
Halldór Benjamín segir forsvarsmenn telja að Íslendingar séu fullfærir um að sækja fram í hvívetna, um leið og þeir takist á við áskoranir sem blasi við hverju sinni. Stór hluti þjóðarinnar telji að Ísland sé land tækifæranna og að hagsmunum Íslands sé best borgið utan ESB.
„Þetta er hreyfing þvert á alla flokka og það gaman að segja frá því hér að meðal stofnmeðlima ásamt mér er Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar. Hún sýnir og sannar að hér eru ólíkir pólar íslensks samfélags að taka saman höndum.“
Grunnsáttmála verði ekki breytt „hvorki af Íslendingum né öðrum“
Hátt í þúsund manns mættu á fundinn. Meðal ræðumanna var Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands.
Ólafur segir að Ísland hafi náð í fremstu röð á nær öllum sviðum frá því sjálfstæði náðist. Hann vilji leggja áherslu á þann árangur.
„Og því hversu óskynsamlegt það er að taka einhverja u-beygju núna og halda í einhverja allt aðra átt þar sem fjarlægar valdastofnanir eiga að fara að ráða miklu um hvað við gerum hér á Íslandi.“
Ákveðin upplýsingaóreiða sé við lýði í umræðunni.
„Aðalatriðið er að það er verið að reyna að telja fólki trú um það að við vitum ekkert hvernig Evrópusambandið er og það þurfi að fara í einhvern könnunarleiðangur, þó að það viti tugir landa í Evrópu nákvæmlega hvernig það lítur út og grunnsáttmála Evrópusambandsins verður ekki breytt, hvorki af Íslendingum né neinum öðrum.“