Samkvæmt nýrri könnun Gallup sem gerð var fyrir hreyfinguna Áfram-Ísland segjast átta prósent óákveðnir þegar spurt er um afstöðu þeirra í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið. 46 prósent ætla að segja já og sami fjöldi, 46 prósent, ætlar að segja nei.
Staðan er því hnífjöfn þegar kemur að hópunum tveimur. Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði segir það ekki koma á óvart. Reynslan í seini tíð sýni að þjóðaratkvæðagreiðslur sem snúast um Evrópusambandið verði ansi jafnar. Það hafi þó ekki alltaf verið þannig í sögunni.
„Til dæmis þegar Austur-Evrópuríkin gengu inn í Evrópusambandið þá gerður þær það allar með yfirgnæfandi stuðningi eða meira og minna í það minnsta en það hefur verið miklu mjórra á mununum í ríkjum sem Íslendingar eru vanari að bera sig saman við eins og á Norðurlöndunum.“
Mjótt á munum
Eiríkur segir til dæmis að Svíar hafi gengið inn í sambandið með litlum stuðningi auk þess sem Norðmenn felldu samning naumlega.
„Þegar Bretar gengu út úr Evrópusambandinu var það líka mjög naumlega. Seinasta kosningin sem er reyndar fyrrum austantjaldsríki, Moldóva, þar var mjög mjótt á mununum. Þannig þetta hefur verið tilhneigingin ef maður lítur til tímans og samanburðarhæfra ríkja við Ísland þá segi það okkur að mjótt verði á munum.“
Þær atkvæðagreiðslur sem Eiríkur vísar til snérust um aðild að sambandinu eða útgöngu úr því. Í ágúst greiðum við landsmenn atkvæði með eða á móti því að fara í aðildarviðræður. Eiríkur segir þá breytu mögulega hafa einhver áhrif á það hvort mjög mjótt verði á munum, það sé þó erfitt að segja.
Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, var spurð að því í Bítinu á Bylgjunni fyrir helgi hvort 51 prósent niðurstaða væri nógu afgerandi til að hefja ekki viðræður. Sagðist hún þá gjarnan vilja fá meira afgerandi svar frá þjóðinni.
Er það raunhæft? „Það er óskhyggja.“