Þetta kemur fram í yfirlýsingu á Facebook. Þar segir að atvikið hafi átt sér stað í Lækjargötu við Laugaveg þar sem nokkrir einstaklingar hafi veist að karlmanni á miðjum aldri.
„Lögreglan biður þá sem kunna að hafa orðið vitni að líkamsárásinni eða eiga upptökur sem varpað gætu ljósi á málsatvik, að hafa samband í síma 444 1000. Upplýsingum má einnig koma á framfæri í tölvupósti á netfangið 2519@lrh.is.“
Myndband af líkamsárás í götunni hefur undanfarið verið í dreifingu á samfélagsmiðlum. Það má sjá hér að neðan.