Orkuveitan hefur hlotið 10 milljónir evra í styrk, eða um 1,5 milljarð króna, frá Horizon Europe, rannsóknar- og nýsköpunaráætlun Evrópusambandsins. Styrkurinn er veittur svokallaðri djúpnýtingarvegferð Orkuveitunnar. Það er fjögurra milljarða áætlun til þriggja ára sem felst í að bæta nýtingarmöguleika jarðhitasvæða með dýpri og heitari borholum. Auk þess er markmið verkefnisins að auka þekkingu á sviði jarðhitarannsókna.
Unnið hefur verið að því að hagnýta „ofurheitan“ jarðhita í um tvo áratugi. Búið er að sýna fram á að orkan er til staðar en næsta skref er að leysa tæknilegar áskoranir sem komið hafa upp, að því er segir í tilkynningu Orkuveitunnar.
Gæti haft áhrif á nýtingu endurnýjanlegrar orku víða um heim
„Til þess að komast dýpra þarf að þróa og hanna búnað sem stenst þær krefjandi aðstæður, eins og fóðringar, holuloka, steypu og margt fleira. Í öflugu samstarfi við innlenda og erlenda aðila ætlum við okkur að bora, prófa ólíkar lausnir í raunaðstæðum og leysa þannig hverja áskorun skref fyrir skref. Um þetta snýst djúpnýtingarvegferð Orkuveitunnar og við hlökkum til,“ er haft eftir Heru Grímsdóttur, framkvæmdastýru rannsókna og nýsköpunar, í tilkynningunni. Náist að hagnýta þennan jarðhita komi það til með að hafa mikil áhrif á nýtingu endurnýjanlegra orkugjafa, bæði hér á landi og erlendis.
Fyrsta skrefið í þessu verkefni er að bora holu á Nesjavöllum síðla árs. Það verður gert í samstarfi Orkuveitunnar, Landsvirkjunar, HS Orku, stjórnvalda og sveitarfélagsins Grímsness- og Grafningshrepps. Borunin, sem verður í höndum Jarðborana, hlaut nýverið 310 milljónir króna í styrk úr Loftslags- og orkusjóði. Önnur rannsóknarhola verður boruð í árslok 2027.