Dómsmálaráðherra og umhverfis-, orku- og loftlagsráðherra hafa verið afkastamest á þingi þennan veturinn og hófst þingfundur í morgun á atkvæðagreiðslum um þrjú mál þess síðarnefnda.
Meirihlutinn samþykkti að Tröllárvirkjun og Skúfnavatnavirkjun á Vestfjörðum skyldu færðar í nýtingarflokk rammaáætlunar sem og virkjanakosturinn Bolaalda á Hellisheiði sem er 100 megavatta jarðvarmavirkjun. Þá var Hamarsvirkjun í Múlaþingi færð í biðflokk. Þingmenn allra flokka studdu málið.
Tvö frumvörp ráðherrans urðu einnig nær því að verða að lögum. Þverpólitsk samstaða er um frumvarp um þrepaskipt jöfnunargjald raforku en ekki er sama sátt um að virkjanakostir í vindorku verði færðir undir rammaáætlun rétt eins og vatnsafls- og jarðvarmavirkjanir.
Sett er skilyrði um að vindorkuver skuli vera nærri tengivirki án þess að fjarlægðin sé skilgreind. Ráðherra sagði við atkvæðagreiðsluna að þetta væri ein strangasta vindorkulögjöf Evrópu.
Almennt er samstaða um að einhvers konar lagaramma þurfi utan um vindorku en fulltrúar Framsóknarflokks og Miðflokks í umhverfis- og samgöngunefnd lögðu til í minnihlutaáliti að málinu yrði vísað aftur til ríkisstjórnar. Sú tillaga var felld.
Halla Hrund Logadóttir, fulltrúi Framsóknarflokks, segir að frumvarpið festi í sessi það sem kallað er verkefnamiðuð nálgun. Það er að allir vindorkukostir, óháð því hversu raunhæfir þeir eru, fari í umfjöllun rammaáætlunar.
„Það er að segja að fólk getur verið að senda inn fullt af kostum sem eru óraunhæfir á allan mælikvarða en fara samt sem áður í gegnum langt og strangt stjórnsýsluferli, taka tíma hjá öllum hagaðilum og kosta miklar deilur í samfélögum eins og við sjáum til dæmis í Borgarbyggð. Við gætum ákveðið örfáa staði á landinu þar sem er hagkvæmt út frá raforkukerfinu okkar að nýta vindorku en líka haft lágmörkuð áhrif á náttúru. Og ákveðið bara sem þjóð að við ætlum að hafa vindorkuna á slíkum fáum afmörkuðum stöðum.”
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis- orku- og loftlagsráðherra, benti á við atkvæðagreiðsluna að umsóknum um vindorkukosti hafi fækkað á undanförnum misserum. „Ég vil líka vekja athygli á því að eftir að við klárum þetta mál hér þá mun ég gera reglugerðarbreytingu þar sem við herðum á kröfum um gagnaskil þannig að það sé ekki verið að þvælast með algjörlega vanbúna kosti.“