Ómar Björn Stefánsson var hetja ÍA er liðið sigraði FH, 1:0, á útivelli í 9. umferð Bestu deildar karla í fótbolta í Kaplakrika í kvöld.
Með sigrinum fór ÍA upp í efri hlutann og er liðið í sjötta sæti með tólf stig. FH er sem fyrr í næstneðsta sæti með aðeins tvö stig.
Ómar kom inn á sem varamaður í seinni hálfleik og skoraði sigurmarkið á 76. mínútu með góðri afgreiðslu úr teignum eftir glæsilegan undirbúning hjá Guðmundi Þórarinssyni.
FH-ingar fengu einar ellefu hornspyrnur í leiknum en sköpuðu sér lítið sem ekkert af opnum færum.
Hinum megin komust Skagamenn tvívegis nálægt því að skora áður en Björn sá um það en bæði Guðmundur og Viktor Jónsson settu boltann í tréverk Fimleikafélagsins.
Lýsing uppfærist sjálfkrafa
Ómar Björn Stefánsson
(76. mín.)
Ísak Óli Ólafsson
(17. mín.)










