Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur sagst ætla að hlíta úrskurði dómara sem fyrirskipaði honum að fjarlægja nafn sitt úr heiti John F. Kennedy-sviðslistamiðstöðvarinnar
Alríkisdómarinn Christopher Cooper við héraðsdóm Washington-borgar úrskurðaði í gær að stjórn sviðlistastofnunarinnar hefði staðið ólöglega að málum og að óheimilt sé að breyta nafni hennar án formlegs samþykkis þingsins.
Hann gaf tveggja vikna frest til að fjarlægja nafn Trumps af framhlið byggingarinnar og úr öðrum opinberum skjölum. Dómarinn úrskurðaði jafnframt að tveggja ára lokun miðstöðvarinnar vegna viðhalds væri brot gegn lagalegri skyldu hennar um listastarfsemi og því skuli ekki verða af henni.
Trump virðist ætla að láta af stjórnarformennsku Kennedy-miðstöðvarinnar og skrifaði heldur reiðilegan póst á Truth Social. „Við ætlum ásamt þinginu að afhenda þeim aftur þessa hnignandi stofnun, svo þeir geti ákveðið hvað gera skuli við hana,“ skrifaði Trump.
Trump skipaði stöðinni nýja stjórn yfir miðstöðinni í fyrra sem samþykkti einróma nafnbreytingu í Trump Kennedy-miðstöðin ásamt umdeildum stakkaskiptum á hlutverki hennar.
Síðan þá hefur fjöldi listamanna og sýningarteyma aflýst viðburðum í miðstöðinni. Kennedy-miðstöðin var opnuð 1971 til minningar um John F. Kennedy, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna.