Olíuverð hækkaði um 1% við opnun markaða í Asíu í morgun. Verðið hefur þokast hratt upp á við eftir að árásir Bandaríkjanna og Írans hófust að nýju á þriðjudagskvöld, eftir árás Írana á flutningaskip í Hormússundi. Áhyggjur hafa vaknað af frekari truflunum á framboði olíu frá Mið-Austurlöndum.
Tunnan af Brent-hráolíu kostaði 78,80 Bandaríkjadali við opnun markaða. Verðið er nú svipað og um miðjan síðasta mánuð, áður en Bandaríkin og Íran undirrituðu viljayfirlýsingu um frið. Donald Trump sagði í gær samkomulagið vera runnið út í sandinn.
Verðið er þó enn langt frá þeim hæðum sem það náði við upphaf stríðsins þegar tunnan kostaði nærri 120 dali.