Olía sést greinilega í Kópavogslæk og megn olíulykt í samræmi við það. Hanna Fríða Jóhannsdóttir, íbúi í Kópavogi, deildi myndum af læknum á hverfishóp á Facebook fyrr í dag.
Í fyrra fékk Kópavogsbær 122 milljónir króna í styrk frá Evrópusambandinu til að bæta vatnsgæði Kópavogslækjar og vakta ástand hans. Styrkurinn var hluti af verkefninu LIFE ICEWATER.
Í samtali við fréttastofu segir Hanna það hafa verið sláandi að koma að læknum í dag. Hún hafi reynt að ná í þjónustumiðstöð Kópavogsbæjar en enginn svarað þrátt fyrir margar hringingar. Hún ætli að tilkynna mengunina til Heilbrigðiseftirlits Kópavogs.
Mestar áhyggjur segist Hanna hafa af lífríki í læknum og í Kópavogstjörn.
Hún segist ganga í Kópavogsdal nær daglega og oft hafa orðið vör við mengun í læknum. Það sé til að mynda oft megn lykt af hreinsiefnum af vatninu.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem lækurinn hefur verið mengaður. Árið 2023 mældust sex eiturefni yfir heilsuverndarmörkum í læknum, árið 2013 varð lækurinn hvítur vegna mengunar og árið 2018 skipti lækurinn um lit vegna mengunar frá lóð Málningar hf. Árið eftir skipti lækurinn aftur um lit.