Olíuverð hækkaði í morgun þegar markaðir voru opnaðir. Fatið af Norðursjávarolíu fór yfir 100 dollara.
Verðið hækkaði í framhaldi af árásum stríðandi fylkinga á og við Persaflóa. Bandaríkjamenn segjast hafa ráðist á fimm írönsk olíuskip til að hefna fyrir árásir Írana.
Íranar brugðust við með því að skjóta eldflaugum á bandarísk skotmörk í Jórdaníu.