Ökumanns sem reyndi að stinga af bíður kæra vegna fjölda umferðarlagabrota

Ökumanns sem reyndi að stinga af bíður kæra vegna fjölda umferðarlagabrota

Ölvaður ökumaður sem reyndi að stinga lögregluna af í gærkvöld eða í nótt má búast við kæru vegna fjölmargra umferðarlagabrota.

Maðurinn var handtekinn líkt og tveir aðrir sem höfðu uppi ógnandi tilburði við meðborgara sína í miðborginni. Að því er segir í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu var ástand þeirra svo slæmt að beita þurfti þá lögreglutökum uns þeir voru komnir í fangaklefa.

Alls sjö gistu fangaklefa í morgun. Eitt ungmenni var flutt á lögreglustöð og sótt þangað af forráðamönnum eftir slagsmál í miðborginni. Auk þessa hafði lögregla afskipti af ökumönnum í ýmsu ástandi og sektaði nokkra sem óku talsvert yfir hámarkshraða.

#bíður #reyndi #sem #stinga #ökumanns


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/innlent/2026-05-02-okumanns-sem-reyndi-ad-stinga-af-bidur-kaera-vegna-fjolda-umferdarlagabrota-474119

Fatal error: Uncaught Error: Call to undefined function getRecentArticles() in /home/u581947260/domains/skrollid.com/public_html/index.php:260 Stack trace: #0 /home/u581947260/domains/skrollid.com/public_html/index.php(36): showArticlePage() #1 {main} thrown in /home/u581947260/domains/skrollid.com/public_html/index.php on line 260