Þetta kemur fram í fréttatilkynningu vegna málsins frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Þar segir að þrír hafi verið fluttir á Landspítalann eftir að eftirför lauk á frárein frá Reykjanesbraut að Breiðholtsbraut í Reykjavík á ellefta tímanum í gærkvöldi. Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu hafi borist tilkynning um málið skömmu fyrir klukkan tíu, en þá hafi bifreið verið ekið á ofsahraða frá Suðurnesjum og eftir Reykjanesbraut áleiðis að Hafnarfirði.
Myndskeið af vettvangi má sjá í spilaranum hér að neðan:
Þar hafi eftirför embættisins hafist, en fyrrnefndri bifreið hafi verið ekið eftir Reykjanesbraut um Hafnarfjörð, Garðabæ, Kópavog og Reykjavík, en hafi eftirförinni lokið þegar „ökufanturinn“ ók aftan á aðra bifreið. Við áreksturinn hafi báðar bifreiðarnar hafnað utan vegar. Tveir hafi verið í bifreiðinni, sem ekið var á og báðir hafi verið fluttir á slysadeild, en ekki sé talið að meiðsli þeirra séu alvarleg.
„Ökufanturinn, piltur undir tvítugu, var handtekinn á vettvangi og í framhaldinu fluttur á Landspítalann til aðhlynningar. Ekki þarf að fara mörgum orðum um alvarleikann að aka með þessum hætti, en ljóst er að ökufanturinn stofnaði lífi og heilsu annarra vegfaranda í mikla hættu með aksturslagi sínu. Í Hafnarfirði ók hann jafnframt stuttlega inn í Áslandshverfið á meðan eftirförinni stóð. Lögreglumenn settu út tvær naglamottur, aðra í Hafnarfirði og hina í Garðabæ, þegar reynt var að stöðva ökufantinn.“