Er þetta meðal þeirra 68 mála sem voru skráð í kerfi lögreglunnar frá klukkan 17:00 í gær til klukkan 05:00. Það gistu í það minnsta þrír í fangageymslu lögreglunnar fram á morgun.
Í miðbæ Reykjavíkur voru tveir dyraverðir handteknir eftir að þeir veittust að manneskju með höggum og spörkum og voru þeir látnir lausir að lokinni skýrslutöku. Lögreglan á Stöð eitt sinnti einnig tveimur útköllum þar sem óskað var eftir aðstoð við að vísa óvelkomnum aðila á dyr, annars vegar út af matsölustað og hins vegar út úr verslun.
Nokkrar tilkynningar bárust lögreglunni um að einstaklingur, sem var talinn vera ofurölvi, væri að trufla umferð með því að reyna að fara fyrir bíla og var sá með hótanir við gangandi vegfaranda. Einstaklingurinn var vistaður í fangaklefa vegna gruns um brot á lögreglusamþykkt.
Þá barst lögreglunni á stöð þrjú, sem sinnir verkefnum í Kópavogi og Breiðholti, tilkynning þar sem tilkynnandi kvað einstakling vera að sitja fyrir sér þar sem einstaklingurinn taldi sig eiga eitthvað sökótt við tilkynnanda. Einstaklingnum var gert að láta af háttsemi sinni og var honum vísað brott af vettvangi.
Á varðsvæði stöðvar fjögur, sem nær yfir norðanverða höfuðborgina auk Mosfellsbæjar, var tilkynnt um einstakling sem sæti í ökumannssæti bifreiðar og lægi fram á stýrið. Lögreglumenn athuguðu með ástand aðilans sem reyndist hafa fundið til mikillar þreytu og því lagt sig.