Ógn í Árbænum

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í nógu að snúast í gærkvöldi og í nótt og sinnti fjölda verkefna, þar á meðal hnífaógn, líkamsárásum, þjófnuðum og akstri undir áhrifum áfengis og fíkniefna.
Tilkynning barst um mann sem hafði ógnað öðrum með hníf á hóteli í miðborg Reykjavíkur. Lögregla og sérsveit ríkislögreglustjóra fóru á vettvang, fundu manninn og handtóku hann. Hann var vistaður í fangaklefa.
Einnig var einn maður handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Reykjavíkur og vistaður í fangaklefa.
Nokkrir ökumenn voru stöðvaðir grunaðir um akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefna. Þrír voru handteknir vegna gruns um slíkan akstur og færðir í hefðbundið ferli. Þá var annar ökumaður handtekinn eftir að vegfarendur tilkynntu að hann hefði ekið utan í nokkrar bifreiðar í miðborginni og valdið talsverðum skemmdum. Sá var einnig vistaður í fangaklefa.
Tveir aðrir ökumenn voru handteknir grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna og færðir á lögreglustöð. Þá var einn ökumaður sektaður fyrir að aka á gangstétt. Hann játaði brotið og sagði tilganginn hafa verið að stytta sér leið.
Lögreglu bárust einnig nokkrar tilkynningar um þjófnaði í verslunum. Tvö mál voru afgreidd á vettvangi en í Garðabæ komust nokkrir aðilar undan með þýfi og er það mál til rannsóknar.
Tvö útköll tengdust leigubílstjórum sem lentu í vandræðum með farþega sem neituðu að greiða fyrir akstur. Í öðru tilvikinu greiddi farþeginn fargjaldið þegar lögregla kom á vettvang.
Þá var lögregla kölluð til vegna tveggja manna í annarlegu ástandi í Árbænum sem voru sagðir ógna vegfarendum. Mönnunum var vísað á brott án frekari vandræða.