Oddný Harðardóttir, fyrrverandi ráðherra Samfylkingarinnar, segist hafa þrennt um sveitarstjórnarkosningarnar sem fram fóru um helgina að segja.
Nefnir hún í fyrsta lagi að Samfylkingin hafi unnið stórsigur í Suðurnesjabæ þar sem flokkurinn fékk 34% atkvæða. Næst nefnir hún afsögn Guðmundar Árna Stefánssonar, oddvita flokksins í Hafnarfirði. Hann ákvað að segja af sér sem oddviti og varaformaður flokksins eftir að Samfylkingin tapaði tveimur bæjarfulltrúum í Hafnarfirði. Þannig hafi Guðmundur viljað taka ábyrgð á slæmu gengi. Oddný ber þetta saman við stöðu Einars Þorsteinssonar, oddvita Framsóknar í Reykjavík, sem hafi lýst yfir sigri þrátt fyrir að hafa tapað þremur borgarfulltrúum. Loks nefnir Oddný að Samfylkingin í borginni hafi líklega liðið fyrir klofning innan flokksins og eins hafi frambjóðendur skort kjarkinn til að ræða það sem vel hafði gengið á kjörtímabilinu og snúið sér frekar að því að lepja upp gagnrýni andstæðinga. Þannig hafi flokkurinn ekki bætt við sig í borginni.
Oddný skrifar á Facebook:
„Hér koma þrjú atriði sem ég vil segja um sveitarstjórnarkosningar:
- Samfylkingin í Suðurnesjabæ vann stórsigur í sveitarstjórnarkosningunum. Fékk 34% atkvæða og þrjá menn kjörna. Hafði verið í meirihluta á kjörtímabilinu. Aðeins vantaði 6 atkvæði til að fá fjórða manninn inn. Hvar á landinu fékk flokkurinn meira fylgi.
- Mér finnst tíðindum sæta að Guðmundur Árni varaformaður Samfylkingarinnar og oddviti flokksins í Hafnarfirði segi af sér vegna þess að flokkurinn tapaði tveimur mönnum. Til samanburðar lýsir Einar Þorsteinsson oddviti Framsóknar í Reykjavík yfir sigri þegar flokkurinn tapar þremur mönnum eftir að hann sjálfur hafði klúðrað frá sér borgarstjórastólnum á kjörtímabilinu. Ólíkt hafast þeir að. Takk fyrir samstarfið Guðmundur Árni.
- Ekkert fer verr í kjósendur en innanflokksátök. Þau voru ekki samstíga í Samfylkingunni í Reykjavík og engum duldist að forysta flokksins fór gegn borgarstjóranum. Þau fundu fæst það hjá sér að tala stolt um hvað gott hafi verið gert í valdatíð flokksins í borginni. Lápu frekar upp aftur og aftur gagnrýni aldstæðinga. Það hafði þær afleiðingar, að mínu mati, að flokkurinn bætti ekki við sig í borginni.