Nýtti sér dauð­vona mann i aug­lýsinga­skyni - Vísir

Nýtti sér dauð­vona mann i aug­lýsinga­skyni - Vísir

Nýtti sér dauð­vona mann i aug­lýsinga­skyni - Vísir

Þetta er meðal þess sem segir í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í máli fjölskyldu Andemariams gegn Landspítalanum.

Sjá einnig: Ekkjan fór með fullnaðar­sigur af hólmi í héraði

„Þessi háttsemi setti af stað atburðarás sem leiddi með beinum og fyrirsjáanlegum hætti til þess að sjúklingurinn lést,“ segir í dóminum. Héraðsdómur komst að þeirri niðurstöðu að ríkið væri bótaskylt vegna dauða Andemariams.

Dó þremur árum eftir aðgerð

Andemariam, sem var frá Eritreu dó árið 2014, þá 36 ára gamall, þremur árum eftir að plastbarki var græddur í hann vegna krabbameins sem hann var með. Ekkja hans og þrír synir þeirra höfðuðu í upphafi síðasta árs mál gegn ríkinu vegna dauða hans.

Í dómi héraðsdóms segir að ótvírætt sé að aðgerðin, sem hafi leitt til erfiðra veikinda og andláts Andemariams hafi valdið fjölskyldu hans verulegum miska og fjártjóni.

Aðgerðin var framkvæmd í Svíþjóð þann 9. júní 2011 á Karolinska háskólasjúkrahúsinu en Tómas var læknir Andemariams á Landspítalanum og sendi hann til læknisins Paolo Macchiarini í Svíþjóð. Þetta var fyrsta plastbarkaígræðslan sem hann framkvæmdi en á undanförnum árum hefur hann verið dæmdur í fangelsi vegna sambærilegra aðgerða sem hann framkvæmdi síðar á öðrum.

Sjá einnig: Plastbarkalæknirinn hlaut þungan dóm

Tómas er sagður hafa þann 12. maí 2011 breytt tilvísun Andemariams til Svíþjóðar til að láta líta út fyrir að „öll önnur læknismeðferð væri fullreynd“ og það hafi verið gert að beiðni Macchiarinis og til að friða sænska siðanefnd.

„Svo sem leitt hefur verið í ljós, og getið er m.a. um í sænska refsidóminum og í rannsóknarskýrslunni um plastbarkamálið, var þessi fullyrðing röng og fullvíst þykir að meðferðarlæknirinn Tómas hafi vel vitað það,“ segir í dómnum.

Þá segir að í gögnum málsins og í sjúkraskrá Andemariams hafi verið skýr merki um að hann hefði ekki verið í bráðri lífshættu þegar hann fór til Svíþjóðar þann 24. maí. Ekkert neyðarástand hafi verið uppi þar sem súrefnismettun hans hafi verið góð, hann hafi sýnt lítil einkenni, hreyft sig óhindrað og getað ferðast með venjulegu áætlunarflugi.

Þá hafi æxlið verið afar hægvaxandi og viðurkennd, gagnreynd líknandi meðferð sem sérfræðingar í Boston hafi lagt til hafi verið raunhæfur kostur.

„Það var því engin klínísk þörf á því að kasta honum út í óprófaða, lífshættulega tilraun sem aldrei hafði verið gerð áður.“

Sjá einnig: Hafi þurft að þola ómannúð­lega með­ferð sem dró hann til dauða

Ennfremur segir í dómnum að Tómas hafi ekki haft samráð við aðra lækna á Landspítalanum við ákvarðanatöku um meðferð Andemariams. Það verði að teljast ámælisvert og í andstöðu við óskráða meginreglu heilbrigðisstéttarinnar.

„Þótt engar skrifaðar reglur hafi verið til um tilvísanir sjúklinga til útlanda var það skýr óskráð regla á Landspítala að svo flókin tilfelli væru rædd í þverfaglegu teymi. Þessi regla var staðfest i vitnisburði Bjarna Torfasonar, fyrrum yfirlæknis, fyrir dómi. Tómas, sem er hjarta- og lungnaskurðlæknir, en ekki hóls-, nef- og eyrnalæknir eða krabbameinslæknir, tók einn við ábyrgð á sjúklingnum án þess að ráðfæra sig við yfirlækni sinn, Bjarna Torfason, og hélt honum alfarið utan við málið. Fram kom í vitnisburði fyrrum yfirlæknisins að hann hefði fyrst heyrt af þessu máli í fjölmiðlum og hefði ekkert vitað um erindi Tómasar, undirmanns síns, til Svíþjóðar.“

Lögmenn Landspítalans héldu því fram að Tómas hefði verið „grandalaus og blekktur af aðgerðarlækninum Macchiarini,“ eins og segir í dóminum. Það er talið afar ósennilegt og mun samkvæmt dómnum ekki standast við skoðun á tölvupóstum milli læknanna.

„Að mati dómsins hlaut Tómasi Guðbjartssyni að vera fyllilega ljóst hvað stóð til. Til marks um það er jafnframt ljóst af samskiptum í tölvupóstum að Tómas hafði sterkan faglegan og akademískan hvata til að fylgja Macchiarini.“

Í dómnum segir að gögn málsins bendi eindregið til þess að faglegur og akademískur metnaður Tómasar hafi ítrekað verið látinn ganga framar hagsmunum og velferð Andemariams.

Fékk Andemariam á málþing, skömmu eftir að hann hóstaði blóði

Í fyrsta lagi hafi Tómas samþykkt, ásamt Óskari Einarssyni lungnalækni, að vera meðhöfundur vísindagreinar sem birt var í Lancet 10. desember 2011. Þar hafi því ranglega verið haldið fram að Andemariam væri einkennalaus og með nánast eðlilegan öndunarveg fimm mánuðum eftir aðgerð.

Það hafi Tómas vitað með vissu að hafi verið fjarri sannleikanum, þar sem Anermariam glímdi við alvarlega og lífshættulega fylgikvilla.

Þá segir að eins og bent hafi verið á í skýrslu rannsóknarnefndar sem rannsakaði málið á sínum tíma hafi læknarnir aðeins átt einn boðlegan og siðlegan kost í stöðunni. Það hafi verið að draga nöfn sín af lista meðhöfunda að greininni en það gerðu þeir ekki fyrr en í febrúar 2017, eftir að í ljós kom í sænskum skýrslum að Macchiarini hafði aldrei aflað samþykkis siðanefndar fyrir aðgerðinni.

Í öðru lagi hafi Tómas að mati dómsins sýnt af sér ámælisverða háttsemi þegar hann beitti sér fyrir því að Andemariam kæmi fram á málþingi í Háskóla Íslands árið 2012 til að tryggja jákvæða fjölmiðlaumfjöllun.

„Þetta var gert þrátt fyrir að Andemariam hefði skömmu áður verið mjög veikur, hóstað blóði og þurft bráðainngrip í Svíþjóð. Tómas notaði þannig dauðvona sjúkling, sem var í viðkvæmri stöðu og algerlega háður honum um eftirlitsmeðferð, í auglýsingaskyni.“

Þetta sýnir að mati dómsins að ekki verði um villst að framganga Tómasar hafi ekki verið afleiðing af afsakanlegum misskilningi heldur kerfisbundið mynstur. Sjúklingurinn og velferð hans hafi verið nýtt sem tæki til að efla akademískan frama og eigin hagsmuni Tómasar.

Þá segir í dómnum að með því að greiða veginn fyrir því að sjúklingur í viðkvæmri stöðu hafi verið notaður í „stórhættulega tilraun“, sem skort hafi allan vísindalegan og lagalegan ramma, hafi Tómas brotið gegn dýpsta grunni læknisstarfsins, þeirri kjarnareglu sem rekja má til Hippókratesar, að „valda fyrst og fremst ekki skaða“.

„Þetta alvarlega frávik frá alþjóðlegum siðferðisskyldum lækna rennir enn styrkari stoðum undir það mat dómsins að um stórfellt gáleysi hafi verið að ræða. Tjónið af völdum aðgerðarinnar er mikið og ótvírætt og á því ber stefndi [Landspítalinn] skaðabótaábyrgð.“

Héraðsdómur viðurkenndi bótaskyldu ríkisins en hún hefur ekki verið ákveðin enn. Þá er ríkinu einnig gert að greiða málskostnað fjölskyldu Andemariams upp á níu milljónir króna.

#auglýsingaskyni #dauðvona #mann #nýtti #sér


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262887298d/nytti-ser-daudvona-mann-i-auglysingaskyni

📰 Aðrar fréttir

Ozempic-hár hefur valdið heilabrotum - Er svarið að finna í nýrri rannsókn?
📅 06.10.2026 👁️ 0
Ozempic-hár hefur valdið heilabrotum - Er svarið að finna í nýrri rannsókn?
Þyngdarstjórnunarlyf hafa tröllriðið lyfjaumræðunni undanfarin ár. Um tíma virtust allir og amma þeirra vera á Ozempic, samheitalyfinu Wegovy eða öðru...
Sakar formann Kennarasambandsins um rangfærslur og spyr hvort hann hafi brotið siðareglur
📅 06.10.2026 👁️ 0
Sakar formann Kennarasambandsins um rangfærslur og spyr hvort hann hafi brotið siðareglur
Sigvaldi Egill Lárusson, formaður Heimilis og skóla, landssamtaka foreldra, segir formann Kennarasambands Íslands, Magnús Þór Jónsson, hafa farið með ...
Ný skýrsla Orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu - Vísir
📅 06.10.2026 👁️ 0
Ný skýrsla Orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu - Vísir
Skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar var birt á vef stofnunarinnar í dag en hún byggir á rannsóknum og niðurstöðum leyfishafa sem tóku þátt í síðustu r...
Rubio farinn af landi brott - Vísir
📅 06.10.2026 👁️ 0
Rubio farinn af landi brott - Vísir
Rubio fundaði með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra og Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra í Safnahúsinu við Hverfisgötu í morgun. ...
Endurreisn íslenska forvarnarmódelsins
📅 06.10.2026 👁️ 0
Endurreisn íslenska forvarnarmódelsins
Endurreisn íslenska forvarnarmódelsins Fréttin6. október 2026Fréttatilkynning, Innlent, StjórnmálLeave a Comment Frá undirritun viljayfirlýsingarinnar...
Verði að gera fyrir­vara við rann­sókn um karl­mennsku - Vísir
📅 06.10.2026 👁️ 0
Verði að gera fyrir­vara við rann­sókn um karl­mennsku - Vísir
Tilefnið er frétt af alþjóðlegri rannsókn hugveitunnar Equimundo sem unnin var að beiðni Norrænu ráðherranefndarinnar um hugmyndir karla á Norðurlöndu...
Russia responds to US help offer after death of plague researcher
📅 06.10.2026 👁️ 0
Russia responds to US help offer after death of plague researcher
The US and Russia have each offered to help each other tackling infectious diseases.
Vilja reisa eldflauga- og drónaskjöld um Bretland
📅 06.10.2026 👁️ 0
Vilja reisa eldflauga- og drónaskjöld um Bretland
Íhaldsflokkurinn vill koma upp loftvarnakerfi til að verja landið gegn dróna- og eldflaugaárásum. Flokkurinn hefur gefið kerfinu heitið Britannia Dome...
Jeffrey Archer: Queen Camilla pays tribute to 'irrepressible' author and former politician
📅 06.10.2026 👁️ 0
Jeffrey Archer: Queen Camilla pays tribute to 'irrepressible' author and former politician
The bestselling author and former politician died on Monday at the age of 86.
Dag­bók lög­reglu: Próf­laus ein­eygður öku­maður flúði af vett­vangi - Vísir
📅 06.10.2026 👁️ 2
Dag­bók lög­reglu: Próf­laus ein­eygður öku­maður flúði af vett­vangi - Vísir
Í öðrum þættinum var sýnt frá atviki þar sem eineygður próflaus ökumaður reyndi að flýja af vettvangi. Hann var stöðvaður þar sem bifreiðin var eineyg...
Leit að eftir­manni Harðar hefði hafist í haust eða vetur - Vísir
📅 06.10.2026 👁️ 2
Leit að eftir­manni Harðar hefði hafist í haust eða vetur - Vísir
Hörður hefur stýrt fyrirtækinu í sautján ár og verður 64 ára í nóvember. Tilkynnt var um starfslok hans í síðustu viku og Kristín Linda Árnadóttir aðs...
Tilfinningarnar tóku völdin þegar Hafdís og Ambika hittust loksins – Sjáðu myndbandið
📅 06.10.2026 👁️ 2
Tilfinningarnar tóku völdin þegar Hafdís og Ambika hittust loksins – Sjáðu myndbandið
Það var til­finn­inga­þrung­in stund á skrif­stofu SOS Barna­þorp­anna á Ís­landi þeg­ar Ambika Sharma og Guð­rún Haf­dís Karls­dótt­ir hitt­ust loks,...
Skiptar skoðanir á hlutverki Þorgerðar í heimsókn Rubio: „Þú ert að misskilja hrapallega“
📅 06.10.2026 👁️ 2
Skiptar skoðanir á hlutverki Þorgerðar í heimsókn Rubio: „Þú ert að misskilja hrapallega“
Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, segir að heimsókn Marco Rubios, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, til Íslands hafi staðfest að afs...
Námsmaður fær bætur vegna horfinna dekkja
📅 06.10.2026 👁️ 2
Námsmaður fær bætur vegna horfinna dekkja
Kærunefnd húsamála hefur gert leigusala námsmanns, sem leigir íbúð sem er ætluð er námsmönnum, að greiða skaðabætur vegna dekkja í hans eigu sem voru ...
Paramount takes over Warner Bros in $110bn Hollywood merger
📅 06.10.2026 👁️ 2
Paramount takes over Warner Bros in $110bn Hollywood merger
The merger of two of Hollywood's biggest movie studios comes after months of legal disputes and concern over competition.
Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að út­hýsa Aþenu - Vísir
📅 06.10.2026 👁️ 2
Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að út­hýsa Aþenu - Vísir
Brynjar Karl var ómyrkur í máli og sendi Bjarna harðort skeyti í gær. Hann segir framgöngu Bjarna vera mikil vonbrigði og megi hann þá heldur biðja um...
Það helsta frá blaðamannafundi Þorgerðar Katrínar og Rubios
📅 06.10.2026 👁️ 2
Það helsta frá blaðamannafundi Þorgerðar Katrínar og Rubios
Nánari varnarsamvinna, norðurljósin, hernaðarleg uppbygging á Íslandi, umdeilt kort Trumps og fleira var til umræðu á blaðamannafundi utanríkisráðherr...
Eight arrested after cannabis club raids in Playa de las Américas
📅 06.10.2026 👁️ 2
Eight arrested after cannabis club raids in Playa de las Américas
The National Police have arrested eight people and closed two Cannabis Clubs in Playa de las Américas, South Tenerife, as part of an operation targeti...
Eiríkur Rögnvaldsson bannar og skrifar pistla um málfarsfordóma – en lækar sjálfur skot á málfar Miðflokksmanna
📅 06.10.2026 👁️ 2
Eiríkur Rögnvaldsson bannar og skrifar pistla um málfarsfordóma – en lækar sjálfur skot á málfar Miðflokksmanna
Eiríkur Rögnvaldsson, prófessor emeritus í íslenskri málfræði við Háskóla Íslands, hefur árum saman barist gegn því að fólk sé dæmt eftir málfari. Í F...
British national arrested in connection with RAF Fairford incident
📅 06.10.2026 👁️ 2
British national arrested in connection with RAF Fairford incident
It is the seventh arrest in connection to the incident near RAF Fairford last month.
Casino Slots on the Go: A convenient way to enjoy casino entertainment while travelling
📅 06.10.2026 👁️ 2
Casino Slots on the Go: A convenient way to enjoy casino entertainment while travelling
Travel changes your routine, but it does not have to change how you spend your free time. For travellers who enjoy casino entertainment, online slots ...
Sam­talið efnismeira en áður þó tals­verð gjá sé á milli - Vísir
📅 06.10.2026 👁️ 2
Sam­talið efnismeira en áður þó tals­verð gjá sé á milli - Vísir
Í gærkvöld fengu VR og Fagfélögin heimild frá sínum trúnaðarmönnum og samninganefndum til að segja upp kjarasamningum. Halla Gunnarsdóttir formaður VR...
Telur að SA verði að sýna á spilin svo samningar haldi
📅 06.10.2026 👁️ 2
Telur að SA verði að sýna á spilin svo samningar haldi
Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ, telur að Samtök atvinnulífsins verði að koma inn af meiri ákveðni í samningaviðræður sínar við stéttarfélögin s...
Fire breaks out near petrol station in Gran Canaria
📅 06.10.2026 👁️ 3
Fire breaks out near petrol station in Gran Canaria
A fire at an abandoned property in Las Palmas de Gran Canaria sent a huge plume of thick black smoke into the sky yesterday (Monday), making it visibl...
Maður sagður hafa margbeinbrotnað í hrottalegri líkamsárás í Reykjanesbæ
📅 06.10.2026 👁️ 3
Maður sagður hafa margbeinbrotnað í hrottalegri líkamsárás í Reykjanesbæ
Lögreglan á Suðurnesjum hefur til rannsóknar alvarlega líkamsárás í Reykjanesbæ aðfaranótt föstudagsins 2. október. Nútíminn greinir frá. Grunur er um...
DV fjarlægir nafnlausan skoðanapistil um fréttakonu
📅 06.10.2026 👁️ 3
DV fjarlægir nafnlausan skoðanapistil um fréttakonu
DV fjarlægir nafnlausan skoðanapistil um fréttakonu Nafn­laus pist­ill um Elísa­betu Ingu Sig­urð­ar­dótt­ur frétta­konu Sýn­ar hef­ur ver­ið fjar­læg...
Einn í fram­boði til vara­for­manns enn sem komið er - Vísir
📅 06.10.2026 👁️ 3
Einn í fram­boði til vara­for­manns enn sem komið er - Vísir
Guðmundur Ari Sigurjónsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, er einn í framboði til varaformanns enn sem komið er. Framboðsfrestur er þó þar til ...
Ögur­stund í kjara­málum og Marco Ru­bio í heim­sókn - Vísir
📅 06.10.2026 👁️ 3
Ögur­stund í kjara­málum og Marco Ru­bio í heim­sókn - Vísir
Fjallað verður um fundinn í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu 12. Talsmenn Samtaka atvinnulífsins og VR funduðu um forsendur kjarasamninga í morgun....
Skora á borgina að bæta ekki við beygju­vasa - Vísir
📅 06.10.2026 👁️ 3
Skora á borgina að bæta ekki við beygju­vasa - Vísir
Í gær greindi fréttastofa frá því að Miðflokkurinn hefði gengið til liðs við meirihlutann varðandi tillögu um breytingar á gatnamótum Bæjarháls og Höf...
Rubio: Ís­land í miðjunni - Vísir
📅 06.10.2026 👁️ 3
Rubio: Ís­land í miðjunni - Vísir
Rubio mætti með Þorgerði á blaðamannafund eftir fund hans með Þorgerði í Höfða og síðan Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra í morgun. Þar hóf hann...
Leigubremsa: Mikilvæg kjarabót
📅 06.10.2026 👁️ 3
Leigubremsa: Mikilvæg kjarabót
Leigubremsa: Mikilvæg kjarabót Með frum­varpi fé­lags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra eru regl­ur á ís­lensk­um leigu­mark­aði færð­ar nær því sem tíðk­...
Hluti foreldrahópsins á erfitt með að venjast símafríi barnanna
📅 06.10.2026 👁️ 3
Hluti foreldrahópsins á erfitt með að venjast símafríi barnanna
Örfáir hnökrar uppgötvuðust eftir að símasfrí var innleitt í grunnskóla en að flestu leyti hefur innleiðingin gengið farssællega að sögn skólastjóra G...
Grétu af gleði þegar þær hittust loksins - Vísir
📅 06.10.2026 👁️ 3
Grétu af gleði þegar þær hittust loksins - Vísir
SOS barnaþorpin birtu í gær myndband af fagnaðarfundum kvennanna tveggja. „Það er komið að risastórri stund hjá okkur hjá SOS barnaþorpunum. Þið munið...
Unglingsstúlka stakk átta með hnífi
📅 06.10.2026 👁️ 3
Unglingsstúlka stakk átta með hnífi
Fimmtán ára gömul tyrknesk stúlka réðst á og særði átta stúlkur í skóla í Istanbúl í morgun. Hún var vopnuð hnífi og er sögð hafa lagt til nemenda og ...
Lagði grunn að glænýrri tegund stjörnufræði
📅 06.10.2026 👁️ 3
Lagði grunn að glænýrri tegund stjörnufræði
Francis Halzen hefur hlotið Nóbelsverðlaun í eðlisfræði 2026. Í tilkynningu Nóbelsnefndarinnar segir að Halzen hafi lagt grunn að glænýrri tegund stjö...
Hvað varð um „fallegustu stúlku veraldar“? - Svona lítur hún út í dag
📅 06.10.2026 👁️ 4
Hvað varð um „fallegustu stúlku veraldar“? - Svona lítur hún út í dag
Thylane Lena-Rose Blondeau var aðeins tíu ára gömul þegar hún prýddi síður Vogue og var kölluð „fallegasta stúlka veraldar“.Thylane er dóttir franska ...
Byrjaði að grafa göng undir húsið sitt fyrir 4 árum
📅 06.10.2026 👁️ 4
Byrjaði að grafa göng undir húsið sitt fyrir 4 árum
Það eru komin fjögur ár síðan hin bandaríska Kala byrjaði að grafa göng undir heimili sitt í Virginíu í Bandaríkjunum. Hún hefur verið dugleg að sýna ...
Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu - Vísir
📅 06.10.2026 👁️ 4
Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu - Vísir
Óskað er eftir 65 milljónum króna í fjárlögum næsta árs vegna kaupanna. Þetta kemur fram í umsögn Herjólfs ohf. til fjárlaganefndar Alþingis frá 5. ok...
Eva og Kolbeinn gagnrýna karlakönnunina - „Það sem lifir í hugum fólks er hugmynd sem það fékk úr fyrirsögnum“
📅 06.10.2026 👁️ 4
Eva og Kolbeinn gagnrýna karlakönnunina - „Það sem lifir í hugum fólks er hugmynd sem það fékk úr fyrirsögnum“
Eva H. Önnudóttir, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, segir að taka þurfi niðurstöðum könnunar um skoðanir karlmanna á Íslandi með fyrir...
Childminder who left 27 children alone in her home pleads guilty to neglect
📅 06.10.2026 👁️ 3
Childminder who left 27 children alone in her home pleads guilty to neglect
Amanda Mathewson, 55, pleaded guilty to neglect and abandoning children in her care at Kirkcaldy Sheriff Court.
Vilja ekki sjá sameiningu lögregluumdæma
📅 06.10.2026 👁️ 3
Vilja ekki sjá sameiningu lögregluumdæma
Áform dómsmálaráðherra um að fækka lögregluumdæmum landsins í þrjú falla í grýttan jarðveg í Fjarðabyggð þar sem bæjarráð leggst alfarið gegn því að y...
Northern France: At the scene of protests on the streets of Lille
📅 06.10.2026 👁️ 3
Northern France: At the scene of protests on the streets of Lille
The demonstrators are calling for better government investment in high schools.
Krist­rún valdi Victoriu Beckham - Vísir
📅 06.10.2026 👁️ 3
Krist­rún valdi Victoriu Beckham - Vísir
Hún valdi dökkgrænan kjól sem er frá tískuhúsi ofurstjörnunnar Victoriu Beckham til að taka á móti Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna.  Kris...
Sprenging í sölu salt­vatns­potta á Ís­landi - Vísir
📅 06.10.2026 👁️ 3
Sprenging í sölu salt­vatns­potta á Ís­landi - Vísir
Ari Steinn Kristjánsson, framkvæmdastjóri Heitirpottar.is, segir þróunina hafa verið hraða og að ánægðir eigendur saltvatnspotta séu líklega besta aug...
'Ghost particles' from space telescope wins 2026 Nobel Prize in Physics
📅 06.10.2026 👁️ 3
'Ghost particles' from space telescope wins 2026 Nobel Prize in Physics
Belgian physicist Prof Francis Halzen has won for his pioneering work on an observatory that detects particles from space.
One million UK people who have never smoked are now vapers
📅 06.10.2026 👁️ 3
One million UK people who have never smoked are now vapers
Latest statistics also show, for the second year in a row, more over-16s vape than smoke.
Greiddu 2,2 milljónir vegna heimsóknar Sjálfstæðisflokksins
📅 06.10.2026 👁️ 4
Greiddu 2,2 milljónir vegna heimsóknar Sjálfstæðisflokksins
Greiddu 2,2 milljónir vegna heimsóknar Sjálfstæðisflokksins Fram­kvæmda­stjóri banda­rísks fjár­fest­ing­ar­fyr­ir­tæk­is seg­ir það hafa greitt fyr­i...
Óeirðarseggir kveiktu í skóla meðan nemendur og blaðamenn voru ennþá inni
📅 06.10.2026 👁️ 4
Óeirðarseggir kveiktu í skóla meðan nemendur og blaðamenn voru ennþá inni
Grímuklæddir óeirðaseggir kveiktu eld við inngang Vauquelin framhaldsskólans í París að morgni mánudagsins 5. október á meðan um hundrað nemendur voru...
Former German spy chief arrested for espionage and treason
📅 06.10.2026 👁️ 3
Former German spy chief arrested for espionage and treason
August Hanning is accused of obtaining classified information for a foreign power.
Alaska bað nágrannakonu sína afsökunar eftir tveggja ára leiðindi – „Hún fór að gráta“
📅 06.10.2026 👁️ 4
Alaska bað nágrannakonu sína afsökunar eftir tveggja ára leiðindi – „Hún fór að gráta“
Söngkonan Kolfreyja Sól Bogadóttir, betur þekkt sem Alaska, bað nágrannakonu sína afsökunar þegar hún vann níunda sporið í AA-samtökunum. Hún segir fr...