Nýtt trúfélag stofnað á Íslandi

Bjarki ClausenGuð talaði við hann árið 1995 samkvæmt heimasíðu I am Equipping Center
Mynd: Facebook/Bjarki Clausen
I am Equipping Center hefur verið skráð sem trúfélag en greint er frá þessu í Lögbirtingablaðinu.
Samkvæmt heimasíðu trúfélagsins eru leiðtogar þess Bjarki Clausen, Margrét Jakobsdóttir, Ron og Anne Botha, Hilmar Jónsson, Katrín Stefánsdóttir, Akua Andrade og Luis Andrade, Johanna Sewon og Tara Rut Hilmarsdóttir.
I am Equipping Center segja markmið sitt vera að efla kristilegt starf og leiða fólk til trúar. Samtökin segja jafnframt að innan þeirra sé lögð sérstök áhersla á að kenna lærisveinum að ganga með Guði og læra að heyra rödd hans. Þá kemur fram að markmiðið sé að efla andlegt samfélag og styðja einstaklinga í trúarlegri vegferð sinni.