Það er dýrmætt að fá ólíkar raddir að borðinu og tengja saman ólíka menningarheima, segir verkefnastjóri nýs samfélagsverkefnis á Ásbrú. Hugmyndin kemur frá börnum í Háaleitisskóla sem kölluðu eftir miðlægu hjarta í hverfið.
„Svona verður ekki til nema samfélagið taki sig saman og þetta er fyrst og fremst barnanna, þetta er þeirra hugmynd, þau koma hérna að borðinu í einu og öllu. Koma með sínar hugmyndir um það hvað þau vilja gera hérna. Þannig að þetta er búið að vera mjög skemmtilegt verkefni,“ segir Thelma Hrund Hermannsdóttir, verkefnastjóri Hjarta Ásbrúar.
70% nemenda með annað móðurmál en íslensku
Hjarta Ásbrúar er nýtt samfélagsverkefni í gamla leik- og bíóhúsinu Andrews Theater. Hugmyndin kemur frá 400 börnum í Háaleitisskóla sem unnu að framtíðarsýn fyrir hverfið og kölluðu þau eftir miðlægu hjarta á Ásbrú, stað til að koma saman og hafa gaman.
Hópur bakhjarla styrkir verkefnið sem er hugsað þvert á kynslóðir og tungumál. Starfsemin er öllum aðgengileg og gestum að kostnaðarlausu. Ýmislegt er í boði eins og foreldramorgnar, íþróttastarf, kvölddagskrá fyrir ungmenni, leiklistarnámskeið og áhorf á HM í fótbolta. Í Háaleitisskóla, eina grunnskóla hverfisins, eru 70% nemenda af erlendum uppruna með annað móðurmál en íslensku.
Eitthvað svo fallegt við það
„Það er ekki mikil afþreying í boði á þessu svæði og það er líka svo dýrmætt að fá svona ólíkar raddir að borðinu og mismunandi hugmyndir og líka að tengja alla saman frá ólíkum menningarheimum. Það er eitthvað svo fallegt við það,“ segir Thelma.
„Hitta aðra krakka og foreldra“
Hvernig gæti svona staður gagnast fyrir samfélagið?
„Það er örugglega gaman fyrir þær sem eru í fæðingarorlofi eða bara í sumarfríi að koma og hitta aðra krakka og aðra foreldra,“ segir Steinunn Ýr Þorsteinsdóttir gestur í Hjarta Ásbrúar.
„Allir krakkarnir eru toppfólk“
Er góður hópur hérna af krökkum hérna á Ásbrú?
„Já það er ógeðslega góður hópur, allir krakkarnir eru toppfólk,“ segir Stormur Fenrir Hauksson Linn gestur í Hjarta Ásbrúar.
„Bara hafa gaman“
Er gott að hafa svona einhvern stað annan en heimilið til að koma og „chilla“ á?
„Já, algjörlega.“
Og hvernig sérðu þennan stað fyrir þér í framtíðinni, hvað myndirðu vilja sjá að væri hægt að gera hérna?
„Bara hafa gaman, mjög mikið gaman, segir Elena Lilja Söring Arnarsdóttir gestur í Hjarta Ástbrúar.“