Formaður Bændasamtakanna birtir færslu á Facebook með mynd af nýrúnum hrúti með verndandi arfgerð gegn riðu. Myndin er af rassinum á hrútnum og ber handbragðinu við rúninginn vitni.
Færslur fjölmiðla upp úr samfélagsmiðlafærslum með myndum af lögulegum afturendum hafa einmitt tíðum verið vel lesnar.
Trausti Hjálmarsson, formaður Bændasamtakanna, segir í færslunni sem fylgir myndinni að flestir dagar fari í fundarsetur og bændapólitík en meðfram þurfi líka að sinna bústörfunum og undanfarið hafi hann rúið líflömb á milli funda.
„...og hér er ein mynd af vel gerðum ARR/ARR hrút því til sönnunar að eitthvað hafi verið gert.“
ARR er verndandi arfgerð gegn sauðfjárriðu. Unnið er að því að rækta hana upp í íslenska sauðfjárstofninum með það að markmiði að útrýma riðuveiki.
„Innleiðing verndandi arfgerða gengur vel og til að halda þvi afram af krafti voru settir á 10 lambhrútar þar af 4 arfhreinir ARR og hinir 6 arfblendir ARR. Það er nú bara býsna gaman að vera sauðfjárbóndi og fá að taka þátt í og upplifa þessar miklu breytingar sem eru að verða á starfsskilyrðum okkar sauðfjárbænda,“ segir Trausti í færslunni.