Borgarstjórnarskosningarnar eru æsispennandi í ár en samkvæmt skoðanakönnunum undanfarinna daga er ekkert öruggt í stöðunni hvað varðar mögulega meirihluta.
Niðurstöður Gallup benda til þess að Sjálfstæðisflokkurinn geti myndað meirihluta með Framsókn og Viðreisn en Maskína var á öðru máli og telja hægri meirihluta ekki mögulegan án aðkomu Viðreisnar.
Skoðanakannanir eru samt í eðli sínu spá og það sem máli skiptir er það sem kemur upp úr kjörkössunum í langstærsta sveitarfélagi landsins og nú er að fást mynd á afstöðu Reykvíkinga. Fyrstu tölur bentu til mikillar hægri sveiflu í borginni en þá mældist Sjálfstæðisflokkur með 31,9% greiddra atkvæða en nú eru komnar nýjar tölur og fróðlegt að sjá hvort að staðan sé breytt. Talin hafa verið 60.645 atkvæði.
- Sjálfstæðisflokkurinn: 31%
- Samfylkingin: 18,1%
- Vinstrið: 9,6%
- Viðreisn: 10,6%
- Miðflokkur: 12,9%
- Framsókn:7,1%
- Sósíalistaflokkur: 4,4%
- Píratar: 2%
- Flokkur fólksins: 3,4%
- Okkar borg: 0,4%
- Góðan daginn: 0,5%
Þær breytingar hafa átt sér stað frá fyrstu tölum að Framsókn bætir við sig manni, fer úr einum fulltrúa í tvo, á kostnað Sjálfstæðisflokks. Þar með er tveggja flokka meirihluti Sjálfstæðisflokks og Miðflokks ekki lengur í myndinni.
Sjálfstæðismenn fengju þannig 8 menn kjörna. Samfylkingin heldur sínum 5 fulltrúum, Viðreisn bætir við sig einum, Miðflokkurinn fengi þrjá menn kjörna, Framsókn fær tvo borgarfulltrúa, Vinstrið nær inn tveimur og Sósíalistar ná inn einum. Flokkur fólksins, Píratar, Góðan daginn og Okkar börn næðu ekki enn manni.
Meirihlutinn í borginni er fallinn miðað við stöðuna. Til að mynda meirihluta þarf 12 borgarfulltrúa en gæti Sjálfstæðisflokkurinn myndað meirihluta með Miðflokknum, eða þriggja flokka meirihluta með Viðreisn og Framsókn.
Niðurstöður borgarstjórnarkosninganna árið 2022 voru eftirfarandi:
- Sjálfstæðisflokkur: 24,5% og 6 borgarfulltrúar
- Samfylkingin: 20,29% og 5 borgarfulltrúar
- Framsóknarflokkurinn: 18,73% og 4 borgarfulltrúar
- Píratar: 11,63% og 3 borgarfulltrúar
- Sósíalistaflokkurinn: 7,7% og 2 borgarfulltrúar
- Viðreisn: 5,19% og 1 borgarfulltrúi
- Flokkur fólksins: 4,51% og 1 borgarfulltrúi
- Vinstri græn: 4% og 1 borgarfulltrúi
- Miðflokkurinn: 2,45% og enginn borgarfulltrúi
- Ábyrg framtíð: 0,79% og enginn borgarfulltrúi
- Reykjavík besta borgin: 0,22% og enginn borgarfulltrúi
Fréttin hefur verið uppfærð.