„Stjórn Nýs Landspítala ohf. (NLSH) og stýrihópur um skipulag framkvæmda við Landspítala og annarra sérhæfðra sjúkrahúsa hefur kynnt heilbrigðisráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra uppfærða heildaráætlun NLSH,“ segir í tilkynningu á heimasíðu Stjórnarráðisns.
Þar er tekið fram að gert er ráð fyrir að byggingarframkvæmdum ljúki að mestu við nýjan meðferðarkjarna í árslok 2029. Samhliða verklokum muni hefjast yfirfærslutími þannig að hægt sé að hefja starfsemi spítalans á ný með nýjum tækjakosti og búnaði.
Erlendir sérfræðingar komi að skipulagningu flutninganna en gert er ráð fyrir því að framkvæmdum við innanhússfrágang og tækjavæðingu í rannsóknarhúsinu ljúki á undan meðferðarkjarananum sjálfum.
Um sé að ræða eina umfangsmestu innviðauppbyggingu sem farið hefur fram hér á landi. Heildarfjárfestingin hófst árið 2010 og nær til ársins 2031. Það var árið 2013 sem Alþingi samþykkti breytingu á lögum um byggingu nýs Landspítala við Hringbraut.