Borgarfulltrúar Miðflokksins þau Kjartan Magnússon og Marta Guðjónsdóttir, hafa lagt fram tillögu til borgarstjórnar um nýja samgöngustefnu Reykjavíkurborgar og stefnt verði að því að öllum markmiðum aðgerðaáætlunarinnar verði náð fyrir árið 2030:
Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkir að falla frá áformum um svokallaða borgarlínu. Þess í stað verði þegar hafist handa við að stórbæta almenningssamgöngur með eflingu núverandi strætisvagnakerfis.
Jafnframt verði leitast við að hraða framkvæmdum við Miklubrautargöng og endurgerð gatnamóta Reykjanesbrautar-Bústaðavegar, sem og snjallvæðingu umferðarljósa í borginni.
Ráðist verði í eftirfarandi aðgerðir til eflingar strætisvagnakerfinu með sérstakri áætlun. Stefnt verði að því að öllum markmiðum aðgerðaáætlunarinnar verði náð fyrir árið 2030:
- Forgangsakreinar. Ráðist verði í átak við lagningu hægrisettra forgangakreina fyrir strætisvagna á umferðarþungum stöðum þar sem þeir verða helst fyrir töfum.
- Umferðarljósaforgangur. Forgangur strætisvagna verði tryggður með snjallstýringu umferðarljósa.
- Biðskýli og skiptistöðvar. Ráðist verði í úrbætur á biðskýlum og skiptistöðvum í borginni. Upphituð biðskýli verði sett upp á fjölförnum biðstöðvum að erlendri fyrirmynd, t.d. við háskóla, framhaldsskóla og aðra fjölmenna vinnustaði og stofnanir.
- Umbætur á leiðakerfi. Umbætur verði gerðar á leiðakerfi Strætós bs. Meðal annars verði þjónusta bætt í eystri hverfum Reykjavíkur og ýmsar tengingar styrktar. Tímatöflur verði endurskoðaðar í því skyni að auka áreiðanleika kerfisins og tryggja vagnstjórum umsaminn hvíldartíma.
- Vagnafloti. Hraða þarf endurnýjun vagnaflota Strætós bs.
- Greiðslukerfi. Núverandi greiðslukerfi verði skipt út fyrir hraðvirkt og notendavænt kerfi. Gjaldskrá Strætó bs. verði endurskoðuð og afsláttarkjör tryggð fyrir fasta viðskiptavini.
Borgarstjóra er falið hefja án tafar viðræður við ríkisstjórnina og nágrannasveitarfélögin um þessa nýju samgöngustefnu og þær breytingar á samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins, sem hún felur í sér.