Suðlægar áttir verða ríkjandi næstu daga með úrkomu og stundum hvassviðri. Minnst af rigningunni nær þó norður yfir heiðar.
Veðurspáin er svohljóðandi:
Suðaustanátt í dag, víða á bilinu 8-15 m/s og rigning, en þurrt að mestu norðan- og norðaustanlands. Hiti 5 til 10 stig.
Suðaustan 10-18 í fyrramálið og áfram rigning, en úrkomulítið fyrir norðan. Dregur úr vindi síðdegis á morgun og kólnar með skúrum eða éljum á vestanverðu landinu.