Hákon krónprins og Mette-Marit krónprinsessa heimsóttu Harald Noregskonung á ríkissjúkrahúsið í Ósló í dag. Hann hefur var lagður inn á sjúkrahús 17. ágúst vegna blóðleysis.
Á sunnudag sagði norska hirðin heilsu hans hafi hrakað. Hann hefur verið á sýklalyfjum við bakteríusýkingu í blóði. Í gær kom fram að ástand hans væri stöðugt og að hann svaraði meðferð vel.
Hlýjum kveðjum til konungs hefur ringt inn til norska ríkissútvarpssins NRK. „Ég og dóttir mín sendum bestu mögulegu batakveðjur frá Þrándheimi,“ segir viðmælandi NRK þar í borg.
„Mér þykir þetta sorglegt og ég vona að hann nái sér hratt aftur. Við þurfum á honum að halda aðeins lengur,“ segir kona frá Lillehammer.
Ungur maður í Björgvin vonar einnig að hann nái sér og segir Harald eins konar föður allra Norðmanna.
Viðmælendur NRK í Osló óska konungi einn bata og vonast til að hann nái heilsu á ný. Haraldur, sem er 89 ára, hefur verið heilsuveill um nokkurt skeið og var síðast í febrúar lagður inn á sjúkrahús á Tenerife þar sem hann var í fríi.