Nokkur hundruð ár gætu liðið áður en flak Geysis birtist aftur á yfirborði Vatnajökuls og þá verður það líklega komið um 25 kílómetra frá staðnum þar sem flugvélin hrapaði 1950. Þó gæti flakið birst strax á næstu öld ef jökullinn rýrnar hratt á næstu áratugum.
Þetta kemur fram í nýbirtu svari Helga Björnssonar, prófessors emeritus í jöklafræði, á Vísindavef Háskóla Íslands.
Geysir fórst á austanverðri Bárðarbungu 14. september 1950. Mannbjörg varð en flakið grófst í jökulinn enda bætast tveir metrar af snjó ofan á hann á hverju ári.
Helgi segir að vélin hafi lent beint yfir 1.600 metra háum suðausturbarmi Bárðarbunguöskjunnar. Þar er ísþykkt um 200 metrar. Þetta varð til þess að flakið hefur borist austur yfir brúnir öskjunnar en ekki strandað innan hennar.
Flak Geysis er samkvæmt svarinu á heilmiklu ferðalagi. Fyrst fer það um tíu kílómetra til austurs. 76 ár eru frá því flugvélin fórst og hefur hún farið um fjórðung þeirrar leiðar á þeim tæplega átta áratugum.
Næst liggur för hennar til norðausturs í átt að Flæðum og Holuhrauni. Þegar það kemur á leysingarsvæði jökulsins, um 20 kílómetra frá slysstaðnum, tekur það að berast hægt upp að yfirborði jökulsins. Þá er líklegt að það birtist sundurtætt í um 1000 metra hæð, eftir 25 kílómetra ferðalag.
Helgi segir að liðið geti nokkur hundruð ár áður en flakið birtist ef afkoma og hreyfing jökulsins helst óbreytt. Ef hann rýrnar hratt á næstu áratugum gæti flakið komið mun fyrr í ljós, jafnvel á næstu öld.