Nigel Farage, leiðtogi Umbótaflokksins í Bretlandi, ætlar að segja af sér sem þingmaður fyrir Clacton. Hann hyggst þó bjóða sig aftur fram og sækjast eftir endurkjöri á næstunni.
Farage hefur sætt gagnrýni fyrir að hafa ekki skráð gjafir og annan fjárhagslegan stuðning sem hann þáði áður en hann var kjörinn á breska þingið árið 2024.
Samkvæmt umfjöllun breska fjölmiðilsins Sunday Times á þingmaðurinn meðal annars að hafa notið ókeypis öryggisgæslu, þjónustu og fengið afnot af húsnæði sem George Cottrell, náinn samstarfsmaður hans, greiddi fyrir.
Cottrell er dæmdur afbrotamaður en hann hlaut fangelsisdóm í Bandaríkjunum fyrir fjársvik árið 2017. Þá á Farage einnig að hafa þegið fimm milljónir punda í gjöf frá auðkýfingnum Christopher Harborne, einum helsta bakhjarli Reform UK. F
Farage neitar því alfarið að hafa brotið reglur með því að þiggja gjafir frá auðkýfingum. Hann segist hvorki hafa misnotað opinbert fé né vanrækt lagalegar skyldur sínar og telur kjósendur í Clacton eiga að fá að skera úr um það hvort þeir treysti honum áfram. Með afsögninni verður efnt til aukakosninga þar sem Farage hyggst bjóða sig fram að nýju.