Yfirvöld í El Salvador hafa lýst yfir neyðarástandi vegna mikilla þurrka undanfarið. Almannavarnir El Salvador hafa gefið úr rauða viðvörun vegna hita og þurrka á landbúnaðarsvæðum vegna uppskerubrests.
Þar með er virkjað eftirlit og aðstoð fyrir samfélög sem verða fyrir áhrifum þurrkanna sem raktir eru til veðurfyrirbærisins El Niño. Yfirvöld í Hondúras og Panama hafa einnig lýst yfir neyðarástandi vegna mikilla þurrka.
14 hitamet hafa fallið í El Salvador það sem af er ágúst. Lítil úrkoma hefur verið á sama tíma en yfirleitt er næg úrkoma á þessum tíma árs í landinu. Mörg samfélög í El Salvador eru staðsett á þurru landsvæði sem nær einnig til Hondúras og Níkaragva en þetta þurra belti er sérlega viðkvæmt fyrir öfgum í veðurfari.
Mánaðarleg hitamet féllu í öllum löndunum þremur í júní og júlí sem hefur vakið ótta um hungursneyð. Landbúnaðarráðuneyti El Salvador ætlar að veita mataraðstoð til fjölskyldna í dreifbýli sem ekki eru með áveitukerfi.
Hefur áhrif á skipaumferð
Yfirvöld í Hondúras hafa gefið út viðvörun vegna þurrka í 80% landsins. Þá hefur skipaumferð um Panamaskurðinn dregist saman því vatnsyfirborðið hefur lækkað. Innanríkisráðherra Panama, Dinoska Montalvo, segir að með því að lýsa yfir neyðarástandi vegna El Niño geti yfirvöld undirbúið sig undir afleiðingar veðurfyrirbærisins, hverjar svo sem þær kunna að verða.
Enn sunnar í álfunni, í Perú, hefur neyðarástandi einnig verið lýst yfir í þriðjungi borga vegna hita og úrkomu sem gæti haft áhrif á matvælaframleiðslu þar í landi.
Áhrifa El Niño gætir víða
El Niño veðurfyrirbærið myndast að jafnaði á tveggja til sjö ára fresti. Margt bendir til þess að í ár verði öflugasti El Niño sem mælst hefur og talið er að það geti haft í för með sér alvarlegar afleiðingar víða um heim.
Þegar El Niño myndast hækkar yfirborðshiti í mið- og austurhluta Kyrrahafsins við miðbaug sem kemur af stað hnattrænum breytingum á vindum og úrkomu og óútreiknanlegu veðurfari. Þetta hefur einnig áhrif á hitastig jarðar og því hefur verið spáð að þetta ár verði það heitasta sem mælst hefur.