Framkvæmdastjóri fræðslumiðstöðvar í fíknivörnum segir netverslanir með áfengi vera „opinn krana“ fyrir börn og ungmenni sem leiði óumflýjanlega til þess að þau sem vilja sæki meira í áfengisdrykkju.
Embætti landlæknis gerði könnun hjá 14 slíkum verslunum í janúar þar sem í ljós kom að við afhendingu áfengis var aðeins beðið um skilríki í 7% tilvika og í aðeins 36% tilvika var rafrænna skilríkja krafist við kaup. Í 20% tilfella var afhending rafræn eða með þeim hætti að einstaklingur kom ekki nærri afhendingu.
„Þetta kemur okkur sem vinnum í forvarnageiranum ekki neitt á óvart. Við höfum fundið fyrir þessu nú í talsverðan tíma,“ segir Árni Einarsson framkvæmdastjóri FRÆ, fræðslu- og upplýsingamiðstöðvar í forvörnum og heilsueflingu.
„Þarna virðist vera orðinn bara ansi opinn krani fyrir þau til að leita í og það er auðvitað mjög miður. Við vöruðum við þessu strax og við sáum fram á að þessar ólöglegu netsölur væru að festa sig í sessi.“
Geta keypt áfengi hvenær sem er
Foreldrar hafi haft samband við FRÆ og gert athugasemdir um að börn og ungmenni eigi auðvelt með að útvega áfengi í gegnum netverslun með skömmum fyrirvara.
„Það virðist vera verulegur skortur á því að börnin þurfi að veita upplýsingar um aldur, til dæmis, og svo náttúrulega það að þetta er opið nánast hvenær sem er og hægt að verða sér úti um áfengi hvenær sem er,“ segir Árni.
„Þarna virðist vera pottur brotinn og má alveg búast við að þarna verði aukin ásókn af hálfu barna og ungmenna sem vilja og ætla að verða sér úti um áfengi að finna sér þá þennan farveg.“
Loka þurfi netverslunum með áfengi
Embætti landlæknis segir mikilvægt að standa vörð um hlutverk ríkisins í smásölu áfengis sem hluta af heildstæðri og gagnreyndri áfengisstefnu. Ef dregið verði úr aðgengisstýringu, verðstýringu og aldurseftirliti þá minnki virkni áhrifaríkustu forvarnaaðgerða.
Árni tekur undir þetta og segir dugleysi stjórnvalda, líkt og hann orðar það, standa í vegi.
„Fyrst og fremst þarf bara að fylgja íslenskum lögum hvað þetta varðar og loka þessum netsölum,“ segir Árni.
„Það hefur til skamms tíma ríkt samstaða um þetta fyrirkomulag okkar, til dæmis að hafa áfengissölu í höndum ríkisins og gerðar kröfur um ábyrga viðskiptahætti og gott eftirlit og að við stöndum vörð um hagsmuni barna og ungmenna. Þannig að okkur þykir vera ansi mikill losarabragur á þessu núorðið.“