Norræna orkukerfið er viðkvæmt fyrir netárásum, skemmdarverkum og truflunum á mikilvægum innviðum. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Norrænu ráðherranefndarinnar um orkuöryggi. Þar segir að búast megi við að eftirspurn eftir raforku aukist verulega á komandi árum þar sem ný orkufrek fyrirtæki séu að festa sig í sessi á Norðurlöndum. Áframhaldandi uppbygging endurnýjanlegrar orkuframleiðslu sé lykilforsenda sjálfbærrar þróunar og viðnámsþróttar svæðisins til lengri tíma.
Helstu áskoranir orkukerfisins á Íslandi eru tvíþættar að því er segir í skýrslunni. Annars vegar eru engar kröfur gerðar um lágmarkskröfur olíubirgða og hins vegar er kerfið einangrað og einsleitt. Einangrunin skýlir orkukerfinu vissulega fyrir verðbreytingum á meginlandi Evrópu en það þýðir líka að ef útfall yrði í einum af stærri virkjunum landsins þá er ekki hægt að bæta upp fyrir framboðsskellinn með því að flytja inn orku frá öðrum ríkjum. Þá er stór hlutdeild álvera sérstaklega nefnd í samhengi við einsleitni kerfisins.
Mælst til að 90 daga olíubirgðir verði tryggðar
Í tilmælum til Íslands segir að skilgreina ætti lágmarkskröfur um olíubirgðir. Mælst er til þess að ávallt séu 90 daga olíubirgðir til staðar á landinu.
Þá er einnig mælt með því að Landsnet verði áheyrnarríki í sérstakri norrænni samhæfingarstöð flutningsfyrirtækja raforku.
Í skýrslunni eru settar fram 25 tillögur um hvernig löndin geti unnið saman að því að styrkja orkuöryggi. Meðal annars er lagt til að vernd mikilvægra innviða verði styrkt og að meiri stefnumótandi áhersla verði lögð á Norðurslóðir og Norður-Atlantshafssvæðið. Lagt er til að viðbragðsáætlanir verði styrktar og að samhæfing við tengingu stórra, nýrra raforkunotenda verði bætt.
„Norðurlöndin búa yfir traustu orkukerfi og margra ára reynslu af samstarfi sem byggir á trausti. Nú verðum við að stíga næsta skref til að styrkja sameiginlegt orkuöryggi okkar. Nánara samstarf á sviði orkumála mun styrkja viðnámsþrótt okkar og grænu umskiptin,“ er haft eftir Karen Ellemann, framkvæmdastjóra Norrænu ráðherranefndarinnar, í tilkynningu frá nefndinni.
Skýrslan var unnin af Economic Security Forum fyrir hönd Norrænu ráðherranefndarinnar og Nordisk Energiforskning.