Nauðsynlegt er að bregðast við innviðaskuld innan lögreglunnar segir Grímur Grímsson, þingmaður Viðreisnar og formaður stýrihóps sem mótaði tillögur fyrir nýja löggæsluáætlun dómsmálaráðuneytisins. . Áætlunin var kynnt fyrir embættum lögreglunnar og starfsfólki héraðs- og ríkissaksóknara í dag.
Í henni kemur fram að töluverð innviðaskuld hefur myndast hjá lögreglu. Unnið er að heildstæðri greiningu á húsnæðisþörfinni í dómsmálaráðuneytinu. Grímur segir að hún felist þó í fleiri þáttum.
„Hún er fólgin í mannafla og hún er fólgin í tækjum og húsnæði. Þannig að allt þetta er eitthvað sem þarf að bæta hjá lögreglu en ég geri mér líka alveg grein fyrir því og hef innsýn í það að það er víða innviðaskuld í þessu samfélagi,“ segir Grímur. Til stendur að lögreglumönnum verði fjölgað um alls 200 fyrir árið 2031 sem er í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar.
Grímur tekur þó undir að eitt sé að gera áætlun en annað að framfylgja henni.
„Ég ber þá von í brjósti að það verði gert með skynsamlegum hætti,“ segir Grímur. Hann telur áætlunina nokkuð sem hægt sé að byggja ofan á.
„Kannski náum við ekki endilega öllum markmiðunum strax,“ segir hann.
„Við viljum ná þeim strax en það er kannski viðunandi þó að við náum þeim ekki öllum í einu,“ segir Grímur sem telur að endurskoða þurfi áætlunina reglulega.
Aðspurður hvort lögregla hafi fulla getu til þess að þjóna samfélaginu segir Grímur svo vera.
„Það er spurning hvernig á það er litið, ég hef rosalega mikla trú á lögreglunni og mér finnst lögreglan standa sig gríðarlega vel,“ segir Grímur.