Norska öryggislögreglan PST hefur sett sig í samband við áströlsk lögregluyfirvöld vegna bréfs sem sent var til íbúðar Ingridar Alexöndru prinsessu þar sem hún býr á stúdentagarði Háskólans í Sydney en prinsessan les þar stjórnmálahagfræði og alþjóðasamskipti.
Öryggisverðir prinsessunnar uppgötvuðu bréfið að sögn ástralska dagblaðsins Daily Telegraph Sydney og reyndist sendandi vera 63 ára gamall maður sem nú hefur þegar verið úrskurðaður í nálgunarbann gagnvart Ingrid Alexöndru en ekki er getið um hvenær bréfið barst til stúdentaíbúðar Ingridar Alexöndru.
Norska dagblaðið VG fjallar um málið og kveðst hafa sent lögreglunni í Nýja Suður-Wales fyrirspurn um málið. Fengust þau svör þaðan að á mánudaginn, 25. maí, klukkan 22 að staðartíma, hafi lögregla farið fram á nálgunarbannsúrskurð yfir 63 ára gömlum manni frá Glebe í kjölfar rannsóknar lögreglu.
Efni bréfsins óþekkt
Maðurinn liggur nú undir grun um umsáturseinelti (e. stalking) og er gert að mæta fyrir dómara 3. júní, á miðvikudaginn.
Ekkert fæst upp gefið um efni bréfsins og heldur er ekki vitað, að sögn VG, hvort prinsessan hafi svo mikið sem séð það né hvenær bréfið barst til íbúðar hennar á stúdentagörðunum.
„PST er kunnugt um atvikið og hefur gert öryggisráðstafanir í samstarfi við áströlsk yfirvöld,“ staðfestir Eirik Veum aðalráðgjafi PST við VG en vill ekki greina frá því í hverju þær felist.
Spurð út í málið benti Guri Varpe, yfirmaður samskiptamála við norsku konungshöllina, á PST og þegar VG hafði samband við háskólann benti hann á lögregluna í Sydney.