Eigandi tveggja íbúða í fjölbýlishúsi í miðborg Reykjavíkur hefur kært þá ákvörðun byggingarfulltrúa borgarinnar að hann skuli fjarlægja viðbyggingu sem hann hafði reist á baklóð hússins. Sagði eigandinn mannvirkið hafa verið reist vegna svala sem hefðu verið byggðar í leyfisleysi af nágranna hans en borgin segir viðbygginguna skapa brunahættu.Maðurinn á raunar aðra íbúðina en fyrirtæki í hans eigu er skráður eigandi hinnar íbúðarinnar.Maðurinn hefur lagt fram kæru vegna málsins til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála.
Nágrannaerjur í miðborginni - Borgin ber við brunahættu