Það ná ekki allir fugli á fyrsta golfhringnum sínum en það gerði Aldís Embla Magnúsdóttir í gær. Aldís fór hringinn reyndar „mörgum, mörgum, mörgum höggum yfir pari“ og var ekki að telja höggin að eigin sögn. Henni tókst hins vegar að bjarga fugli, líklega lómi, sem var flæktur í vír og barðist um í tjörn við 18. holu á velli Golfklúbbs Þorlákshafnar.
Aldís óð út í tjörnina og var í nokkrar mínútur að ná fuglinum.
„Ég hugsaði svo sem ekkert rosalega mikið út í þetta. Ég sá bara að hann var flæktur og ákvað að sjá hvort það væri ekki hægt að ná honum og losa hann,“ segir Aldís í viðtali.
Þórunn Jónsdóttir náði þessu skemmtilega myndbandi af björguninni.
Aldís segir mikið fuglalíf á svæðinu og nefnir sem dæmi uglur, spóa og tjald.
„Maður er svona að fylgjast með þessu í kringum sig og ungarnir að hlaupa út um allt. Svo sáum við að það var fugl á tjörninni þarna við 18. holu og hann var eitthvað rosalega furðulegur. Ég hélt fyrst að þetta væri önd en svo tók Þórunn upp kíki og skoðaði betur og sá að þetta var greinilega ekki önd.“
Þær hafi komið auga á að fuglinn væri flæktur í eitthvað.
„Þegar við sjáum hann þá voru eitt eða tvö högg eftir af átjándu holu. Ég kláraði höggið og færði kerruna þannig maður væri ekki fyrir og svo fór ég bara út í,“ segir Aldís í viðtali við fréttastofu.
Aldís náði að losa fuglinn úr vírnum með hjálp manns sem var nærri og með klippur.
„Við slepptum honum aftur út. Svo horfði ég aðeins á hann á tjörninni og svo endaði hann bara á því að fljúga í burtu,“ segir Aldís. „Hann gat allavega tekið flugið og hann virtist alveg ósærður. Við skoðuðum hann og hann var alveg flæktur um hausinn og fótinn og yfir vænginn. Þetta var komið alveg við skinnið á honum en maðurinn sem kom þarna og klippti á þetta fann samt vírinn og gat klippt hann.“
Var kalt?
„Ég pældi eiginlega ekkert í því hvort það væri kalt eða ekki. Þegar að hausinn er að pæla í einhverju öðru þá tekur maður ekkert eftir því. En það var mjög gott veður þannig þetta var ekkert ískalt.“
Aldís segir fyrsta golfhringinn annars heilt yfir ekkert hafa gengið sérstaklega vel.
Hvað varstu mörgum höggum undir eða yfir pari?
„Ekki hugmynd. Ég var eiginlega bara í Texas sko og það var fullt af vindhöggum. Svo var ég bara að reyna að fylgja með af því það var náttúrulega fólk á eftir okkur líka. Ég var alveg mörgum, mörgum, mörgum höggum yfir pari,“ segir Aldís. Hún náði engu að síður náði því afreki að ná fugli á fyrsta golfhringnum sem er afrek sem fáir kylfingar geta státað sig af.