Myndskeið sýnir lögreglu keyra utan í bílinn
„Ég er bara í eldhúsinu heima hjá mér þegar ég heyri sírenur á fullu. Ég kíki út og sé lögreglubílinn klessa á hinn bílinn einu sinni. Þá hugsaði ég með mér að ég yrði að taka þetta upp.“
Þetta segir Glódís Gabríella, íbúi í Vogabyggð, sem náði mögnuðu myndskeiði af lögreglu reyna að stöðva för ökumannsins sem veitt var eftirför skammt frá Hvalfjarðargöngum og alla leiðina til Reykjavíkur eftir að hafa ekki virt stöðvunarmerki lögreglu.
Ók utan í bílinn ofar á Kleppsmýrarvegi
Þegar bílnum var ekið niður Kleppsmýrarveg og hann var kominn aðeins niður fyrir umferðarljósin á gatnamótum Kleppsmýrarvegar og Skútuvogs segir Glódís að lögregla hafi reynt að stöðva för ökumannsins með því að keyra utan í hann.
Hún hafi þá tekið upp símann og á myndskeiðinu má sjá hvernig lögreglubíll keyrir á eftir bílnum og reynir að stöðva för hans með því að keyra utan í vinstri hlið hans. Bíllinn rásar en ökumanninum tekst að ná valdi á honum með því að keyra upp á gangstétt næst íbúðablokkum í Bátavogi og Stefnisvogi. Fjórir lögreglumenn á bifhjólum fylgja lögreglubílnum eftir.
Undir lok myndskeiðsins má þá sjá hvernig lögreglubíllinn staðsetur sig aftur vinstra megin við bílinn eins og hann undirbúi aðra tilraun til að keyra utan í hlið bílsins.
Nokkrum andartökum síðar var bílnum ekið inn á malarplan í Stefnisvogi þar sem lögregla stöðvaði för hans með því að keyra utan í vinstri hliðina og ökumaðurinn var handtekinn.
Heppin að hafa ekki verið úti á þessum tíma
Glódís segir marga íbúa hafa fylgst með atburðarásinni í gær og að oft séu margir á ferli á gangstéttinni þar sem glæfraaksturinn átti sér stað.
„Ég labba oft þarna og er bara heppin að hafa ekki verið úti á þessum tíma. Ég fékk einmitt komment á videoið á TikTok: „This car almost drove over my girlfriend,“ eða eitthvað svoleiðis.“
Glódís Gabríella segir upplifunina hafa verið mjög taugatrekkjandi. „Þetta var bara sjokk. Maður var ekki að búast við að sjá þetta út um gluggann.“