Fjölmennt viðbragðslið kom að björgun ökumanns steypubíls sem hafnaði í Þjórsá fyrr í kvöld.
Á meðfylgjandi myndskeiði má sjá sigmann Landhelgisgæslunnar sækja manninn áður en hann var hífður upp í þyrlu Landhelgisgæslunnar. Þyrla Landhelgisgæslunnar og björgunarsveitir voru kallaðar á vettvang.
Fluttur á bráðamóttökuna
Ökumaðurinn var einn í bílnum þegar hann hafnaði í ánni.
Hann komst af sjálfsdáðum upp á bílinn þar sem hann beið björgunar.
Í kjölfarið var hann fluttur á bráðamóttöku Landspítalans.
