Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens fagnar 70 ára afmæli sínu í dag og af því tilefni heldur hann tvenna tónleika í Laugardalshöll um helgina.
Þeir fyrri voru í gærkvöldi og þar renndi Bubbi sér í gegnum öll sín þekktustu lög á um þremur klukkutímum. Seinni tónleikarnir eru í kvöld og búast má við að Bubbi – og frábær hljómsveit hans – gefi allt í þá.
Í gær var tilkynnt að Bubba hefðu verið veitt heiðursverðlaun STEFS, samtaka tónskálda og textahöfunda, fyrir ævistarf sitt, sem felur meðal annars í sér að hafa samið og gefið út 666 lög. Bubbi sagði, þegar hann veitti verðlaununum viðtöku, að hann væri alltaf að leita að bestu melódíunni og hann væri ekki enn búinn að semja hana.








