Talsvert af fólki er í sumarhúsalandinu yfir verslunarmannahelgina og meðal annars var dvalið í sumarhúsinu við Birkilund sem logar nú þegar eldurinn kom upp. Allir komust þó út og enginn er slasaður.
Slökkviliðsmenn frá Selfossi og Laugarvatni vinna að því að hefta útbreiðslu eldsins. Ekki er talin steðja eldhætta að öðrum bústöðum í kring.