Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borginni, hittir oddvita þeirra flokka sem hlutu kjör í borgarstjórn á morgun.
Hildur er með öll spil á hendi fyrir meirihlutaviðræður og hefur sagt báða kosti mögulegs meirihluta í borgarstjórn góða, þriggja flokka meirihluta með Viðreisn og Framsóknarflokki og tveggja flokka meirihluta með Miðflokknum.
„Aldrei á minni vakt“
Hildur Björnsdóttir segir að ekki verði á hennar vakt myndaður meirihluti þar sem fordómar séu í öndvegi eða liðnir
„Hér er fólk að lýsa yfir áhyggjum af mögulegum meirihluta, hægri meirihluta eða hægri miðju meirihluta, að ákveðin sjónarhorn verði víkjandi. Ég vil segja strax að ég myndi aldrei kæra mig um að leiða meirihluta þar sem rasismi eða fordómar gagnvart minnihlutahópum eru í öndvegi eða liðnir, bara aldrei á minni vakt“
Segir áhyggjuraddir uppi um mögulega hægri stjórn
Sanna Magdalena Mörtudóttir, oddviti Vinstrisins, segir að áhyggjuraddir séu uppi í samfélaginu um myndun á mögulegri hægri stjórn.
„Það sem ég hef verið að heyra í kringum mig er að það er bara fólk sem er í alvörunni sem óttast hvernig næstu ár verða ef við erum með hægri áherslur, þar sem áherslur eru svona, svo ég segi það bara hreint út, þar sem áherslur eru í takt við það sem við höfum séð hjá Miðflokknum.“
Oddvitar þeirra flokka sem fengu borgarfulltrúa kjörna mættust í Silfrinu í kvöld. Hér má nálgast þáttinn í heild sinni.