Myndband af manni sem grunaður er um að hafa brotist inn í bifreið í Laugardal hefur verið birt í Facebook hópnum Þjófar á Íslandi þar sem leitað er upplýsinga um manninn.
Samkvæmt færslunni stal maðurinnð dýrum sólgleraugum, íþróttafatnaði og tveimur pörum af íþróttaskóm sem voru í bílnum. Einnig var allt sem var í hanskahólfi bifreiðarinnar tekið, þar á meðal smurbók og önnur gögn sem fylgdu bílnum.
Fram kemur að málið hafi verið tilkynnt til lögreglu og að óskað sé eftir upplýsingum frá þeim sem kannast við manninn sem sést á myndbandinu.
Atvikið átti sér stað í Laugardalnum.
