Þetta er á meðal þess sem fram kemur í dagbók Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Það var nóg að gera hjá lögreglunni að vanda og einnig í austurborginni óku lögreglumenn fram á mann sem svaf ölvunarsvefni í bíl lögðum við veginn. Hann var vakinn og gekk hann sína leið.
Í miðborginni hafði lögregla afskipti af nokkrum aðilum vegna ölvunar og ósæmilegrar hegðunar. Málin voru að sögn lögreglu ýmist afgreidd á vettvangi eða þannig að viðkomandi var látinn dvelja í fangageymslu.
Lögregla hafði einnig afskipti af ökumönnum víða um borgina vegna gruns um akstur undir áhrifum og hraðaakstur.