Ef þig vantar drykk sem sameinar orku, fyllingu og gott bragð er mokka-orkudrykkur kjörinn kostur. Hér mætast kalt kaffi, kakó, banani og döðlur í silkimjúkum drykk sem hentar vel á morgnana, fyrir æfingu eða sem millimál þegar orkan fer að dala. Chia-fræin gefa drykknum góða áferð og auka trefjainnihald, á meðan hafradrykkurinn gerir hann mjúkan og kremkenndan. Örlítil saltklípa dregur svo fram bragðið og lyftir heildinni upp.
Mokka-orkudrykkur sem gefur góðan kraft inn í daginn
Mokka-orkudrykkur
Fyrir tvo.
- ¼ bolli kalt kaffi eða ½ msk. espressóduft og ¼ bolli heitt vatn
- 2 bananar
- 2 döðlur, steinhreinsaðar
- ½ bolli hafradrykkur
- ½ msk. kakóduft
- ½ msk. chiafræ
- 1 klípa salt
- 1 bolli klakar
- 1 skeið vanillupróteinduft úr jurtaríkinu, valfrjálst
Aðferð
- Setjið kalt kaffi, banana, döðlur, hafradrykk, kakóduft, chiafræ, salt og klaka í blandara.
- Blandið þar til drykkurinn verður mjúkur og kekkjalaus.
- Ef þið viljið gera hann prótínríkari má bæta vanilluprótíndufti út í áður en blandað er.
- Berið fram í huggulegu glasi og bætið við klökum eftir smekk.