AP-fréttaveitan greinir frá þessu og hefur eftir Kyodo News. Sanae Takaichi, forsætisráðherra Japans, sagði að tilkynningar hefðu borist um fjölda meiðsla og skemmdir á vegum, brúm og byggingum. Þá hafi verið tilkynnt um rafmagnsleysi og eldsvoða en lítið væri um nánari upplýsingar. Takaichi hvatti fólk sem væri að elda til að fara varlega með eld og passa sig á glerbrotum en jarðskjálftinn reið yfir skömmu fyrir kvöld að staðartíma.
Slökkviliðs- og hamfarastofnun Japans sagði í morgun að engar tilkynningar hefðu borist um skemmdir á stórum opinberum mannvirkjum og innviðum en yfirvöld væru enn að meta umfang tjónsins. Slökkvilið á svæðinu fengu margar tilkynningar um eldsvoða og skemmdir á heimilum.
Fréttin er í vinnslu.