Minnisvarði um síðutogara og síðutogarasjómenn var afhjúpaður við hátíðlega athöfn á sjómannadaginn á Höepfnerssvæðinu á Akureyri. Verkið er ætlað að heiðra minningu þeirra sem störfuðu um borð í síðutogurum og varðveita mikilvægan þátt í íslenskri sjávarútvegssögu.
Fréttin birtist fyrst á Akureyri.net.
Sigfús Ólafur Helgason hefur farið fyrir hópi fyrrverandi sjómanna sem stóð að verkefninu. Sigfús sagði við athöfnina að minnisvarðinn segði sögu sem Íslendingar mættu ekki gleyma.
„Það væri hægt að halda hér langa tölu um árin öll í sögu síðutogara, í gleði og sorg. Lífið var sannarlega ekki alltaf dans á rósum og við Íslendingar guldum stundum með lífi sjómanna gjaldið fyrir að sækja sjóinn dýpra og lengra,“ sagði hann.
Saga sem mótaði þjóðina
Sigfús sagði sögu síðutogaranna vera samofna þroska- og vaxtaferli íslensku þjóðarinnar og taldi því ánægjulegt að loksins væri risinn minnisvarði um þennan mikilvæga kafla í sögu landsins.
Hugmyndir um slíkan minnisvarða hafi verið ræddar fyrir um 15 árum og því væri sérstakt ánægjuefni að sjá verkið loks verða að veruleika.
„Ryðhrúgu kalla þetta sumir, en við sem vitum um þessa sögu vitum alveg hvað þetta fallega verk er að segja okkur,“ sagði hann.
Við minnisvarðann hefur einnig verið komið fyrir söguskilti sem segir frá sögu síðutogaranna og þeirra sem störfuðu um borð.
Vonast til aukinnar verndar útgerðarsögunnar
Sigfús benti á að hann og aðrir sjómenn hefðu heimsótt hafnarborgir í Bretlandi og Þýskalandi þar sem saga togaraútgerðar væri sýnileg og vel varðveitt.
Hann sagði Íslendinga standa langt að baki þessum þjóðum þegar kæmi að verndun togarasögunnar og hvatti bæjaryfirvöld til að leggja aukna áherslu á málaflokkinn.
„Við megum samt ekki bíða lengi því á hverju ári erum við að missa hluta af sögunni þar sem maðurinn með ljáinn heggur,“ sagði hann og bauð bæjaryfirvöldum samstarf við sjómenn um frekari uppbyggingu á þessu sviði.
Margir komu að verkefninu
Minnisvarðinn var hannaður af leikmyndateiknaranum Jóni Þórissyni heitnum. Slippurinn á Akureyri sá um smíði verksins og fjölmargir aðilar lögðu verkefninu lið með vinnuframlagi, gjöfum og stuðningi.
Meðal annars gaf HD iðn- og tækniþjónustan kertakross við minnisvarðann, Steinsmiðjan lagði til marmarabekki og Akureyrarbær sá um frágang svæðisins.
Sigfús sagði það einlæga ósk hópsins að minnisvarðinn verði samkomustaður sjómanna og fjölskyldna þeirra um ókomin ár, bæði til að minnast þeirra sem horfnir eru og til að heiðra sögu íslenskra sjómanna.