Minnast Ásgeirs í Bíó Paradís
Tékknesk kvikmynd og ný ljóðabók látna skáldsins og menningarblaðamannsins Ásgeirs H. Ingólfssonar verða í viðburði honum til heiðurs.
Viðburður til heiðurs skáldinu og menningarblaðamanninum Ásgeiri Hrefnusyni Ingólfssyni verður haldinn í Bíó Paradís næsta föstudag.
Ásgeir fæddist 20. ágúst 1976 og hefði orðið fimmtugur daginn fyrir viðburðinn. Hann lést 25. janúar 2025 innan nokkurra vikna frá því hann var greindur með ólæknandi krabbamein. Á dánardaginn í fyrra hafði hann skipulagt viðburð á Akureyri, Lífskviðuna. Hún var hugsuð sem fögnuður sköpunar þar sem Ásgeir ætlaði að deila sínum verkum. Að honum látnum héldu vinir hans og velunnarar viðburðinn í samráði við fjölskyldu hans.
Í viðtali við Heimildina hafði Ásgeir hafnað því að orðið „æðruleysi“ gilti um viðbrögð hans við því sem hann kallaði „dauðadóm“ en ætlaði að mæta með því að halda partý til að fagna lífinu.
„Mér er illa við þetta orð. Kannski hefur það átt vel við í fortíðinni þegar við vorum varnarlausari skepnur. Vandinn við þetta orð er að það er oft notað á undarlegan hátt. Það er stutt síðan margir sögðu að við þyrftum að takast á við afleiðingar loftslagshamfara af æðruleysi. Nei, við hefðum bara átt að vera reið og gera eitthvað í því,“ sagði hann.
Í boði frá vinum og velunnurum Ásgeirs segir að Bíó Paradís hafi verið einn af uppáhaldsstöðum Ásgeirs á Íslandi. Bæði verða í boðinu bíó og bókmenntir.
„Viðburðurinn hefst á bíósýningu ungversku kvikmyndarinnar On Body and Soul (Testről éslélekről) og í framhaldi verður útgáfupartí fyrir nýja ljóðabók Ásgeirs: Næsta stríð. Þar gefst fólki tækifæri að kaupa bókina, spjalla saman og bjóða fram atriði eða upplestur í opnum hljóðnema,“ segir í tilkynningunni. „Þetta verður fögnuður í Ásgeirs anda, þar sem allir eru velkomnir.“
Viðburðurinn hefst klukkan 17 á föstudag í Bíó Paradís, Hverfisgötu.